Prentþjónusta
Svansvottuð prentsmiðja vinnur að umhverfismálum útfrá heildrænni nálgun. Þar er mikilvægt að nota hráefni sem best og minnka þar af leiðandi sóun, sem og skipta út efnavöru sem hefur skaðleg áhrif á heilsu og umhverfið. Reynslan hefur sýnt að með því að minnka sóun á hráefni er einnig hægt að halda kostnaði í skefjum og hámarka framleiðni. Kröfurnar ná sömuleiðis til gæðastjórnunar, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur.
Viðmiðin
Viðmið Svansins fyrir prentþjónustur voru fyrst tekin í notkun árið 2003 og byggist á tilteknum fjölda skyldukrafna ásamt stigakerfi þar sem þarf að ná lágmarksfjölda stiga til að hljóta vottunina. Í viðmiðum Svansins fyrir prentsmiðjur er áhersla lögð á að:
- Nota hátt hlutfall af umhverfisvottuðum pappír
- Lágmarka sóun pappírs í ferlinu
- Lágmarka notkun efnavöru
- Tryggja góða innivist fyrir starfsfólk
- Lágmarka orkunotkun og innleiða orkusparandi aðgerðir
- Innleiða gæðastýringu til að tryggja gæði í þjónustunni
Gjaldskrá
Kostnaður við Svaninn skiptist í umsóknargjald sem greitt er þegar sótt er um og árgjald sem er greitt árlega eftir að fyrirtækið fær vottun.
Umsóknargjald:
- 215.000 ISK fyrir lítil fyrirtæki (minna en 10 ársverk og heildarveltu undir 200. m.kr.)
- 430.000 ISK fyrir stærri fyrirtæki
Árgjald:
- 245 kr. á hvert tonn af innkeyptum pappír
- 82 kr. á hvert tonn af innkeyptum pappír umfram 2.000 tonn
- Þó að lágmarki 270.000 ISK og að hámarki 2.475.000 ISK
Ítarefni
Tengiliður
Ester Alda Hrafnhildar Bragadóttir
Sérfræðingur
esterahb@ust.is
591 2000
Reynslusaga
Ólafur Stolzenwald
Prentsmiðjustjóri – GuðjónÓ
Af hverju völduð þið að Svansvotta ykkar vöru/þjónustu?
Við fórum í þetta af forvitni að minnka jarðolíuefni í fyrstu og með hreinna loft í verksölum!
Hver er ávinningurinn af Svansvottun fyrir ykkur og umhverfið?
Fyrir okkur birtist það mest í betri nýtingu á hráefni, þá sérstaklega pappír. Það verður einnig aukinn skilningur í hönnun og prentvinnslu með hráefnið í fyrsta sæti. Hvað þá efnanotkun og flokkun. Hef sagt það áður að Svanurinn er í raun lítið gæðakerfi því allt verður gegnsætt í framleiðslunni.
Mælir þú með því að fara í gegnum Svansvottunarferlið?
Mæli 100% með Svansvottun þar sem hún á við og sérstaklega í allri framleiðslu.
Hvaða framþróun á Svansvottuninni sérð þú fyrir þér í framtíðinni?
Enn þá meiri kröfur á fyrirtækin sjálf og birgjana að bjóða uppá ennþá umhverfisvænni vöru. Við þurfum ekki að taka stórt skref til að hér fari ekkert almennt sorp frá verksmiðjunni.