13. ágúst 2026

Opið umsagnarferli: Viðmið Svansins fyrir prentþjónustur og prentgripi

Nú gefst kostur á að gera athugasemdir við uppfærð viðmið Svansins fyrir prentþjónustur og prentgripi (041). Vöruflokkurinn nær til prentþjónusta og prentgripa svo sem tímarita, dagblaða, auglýsingaefnis, bæklinga, bóka, umslaga, borða (banners) og umbúða.

Opið umsagnarferli er í gangi frá 13. ágúst til 9. október 2026.

Svanurinn leggur áherslu á að draga úr heildarumhverfis- og loftslagsáhrifum prentþjónusta og prentgripa, ásamt því að stuðla að góðu vinnuumhverfi. Það er meðal annars gert með kröfum um pappír, efnavörur og orkunotkun. Kröfur sem tryggja endurvinnsluhæfni stuðla jafnframt að betri auðlindanýtingu og styðja við hringrásarhagkerfið.
Aðeins prentþjónusta sem er Svansvottuð getur framleitt Svansvottaða prentgripi.

Hér má finna drög af viðmiðunum og frekari upplýsingar um af hverju hver krafa er sett. Ef óskað eftir þýðingu á einstaka kröfum má hafa samband við svanurinn@uos.is.

Helstu breytingar viðmiðanna

  • Prentun á umbúðir fellur nú undir viðmiðin. Athugið að skoða og gera athugasemdir um kröfu O1 um að 50% af veltu þjónustunnar komi frá rentuðu efni á pappír.
  • Lágmarkshlutfall umhverfisvottaðs eða samþykkts pappírs hækkar úr 60% yfir í 70% (krafa O6).
  • Ný krafa um stíft undirlag (rigid substrates) með góðum endurvinnslueiginleikum (krafa O7).
  • Orkunotkun: hámarksmörk hafa verið hert fyrir sumar prentaðferðir. Endilega deilið einnig ykkar reynslu með núverandi kröfu (orkunotkun á hvert tonn undirlags) og komið með tillögur að breytingum (krafa O13).
  • Stigakröfurnar og uppsetning þeirra hefur verið breytt og þær einfaldaðar (kröfur P1-P9 og O20).

HVERNIG Á AÐ SKILA INN UMSÖGN?

Athugasemdir skulu sendar inn hér eigi síðar en 9. október 2026. Formið er á ensku en svörin mega vera á íslensku.
Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við svanurinn@ust.is.

HVER GETA SENT INN UMSÖGN? 

Öll geta sent inn umsögn, hvort sem það eru einstaklingar, fyrirtæki eða stofnanir sem hafa áhuga á að taka þátt í þróunarvinnu viðmiða Svansins. Athugasemdir frá hagsmunaaðilum eru mikilvægur þáttur í vinnunni við að þróa ný eða uppfærð viðmið og okkur þætti vænt um ef upplýsingum um opna umsagnarferlið væri dreift til þeirra sem það gæti varðað.

HVAÐ SVO?

Þegar umsagnartímanum er lokið verða umsagnir teknar saman, þær metnar og ný endurskoðuð tillaga af viðmiðunum lögð fyrir umhverfismerkisráð allra Norðurlandanna. Í kjölfarið mun Norræna umhverfismerkisráðið taka ákvörðun um útgáfu viðmiðanna.

Allar umsagnir sem koma fram í þessu ferli og svör Svansins við þeim verða birtar í ákvörðun Norræna umhverfismerkisráðsins sem verður aðgengileg á heimasíðu Svansins í tengslum við birtingu nýju útgáfu viðmiðanna.

Upplýsingafundur

Endilega látið vita ef áhugi er á opnum upplýsingafundi í tengslum við breytingar viðmiðanna.

 

Fleiri fréttir