20. ágúst 2026

Til hamingju Hornafjörður!

Í dag hlaut Sveitarfélagið Hornafjörður Svansvottun fyrir leikskólann Sjónarhól og varð þar með þriðja sveitarfélagið á Íslandi til að ljúka vottun á eigin framkvæmd – og það fyrsta utan höfuðborgarsvæðisins.

Sveitarfélög hafa fjölmörg tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á umhverfið og geta farið ólíkar leiðir til að setja umhverfismál á oddinn. Þar liggja tækifærin helst í innkaupum, skipulagsvaldi og eigin framkvæmdum og rekstri. Þannig má setja gott fordæmi og styðja við aðra aðila sem vilja gera betur.

Verkefnið á Hornafirði er sérstaklega áhugavert þar sem þetta er bygging fyrir yngstu börnin. Þau upplifa umhverfið með öllum skilningarvitunum og eru því sérstaklega viðkvæmur hópur þegar kemur að skaðlegum efnum.

Í Svansvottun bygginga er lögð sérstök áhersla á:
🌿 heilnæma innivist
🌿 vandað efnisval og að byggingarefni innihaldi ekki skaðleg efni
🌿 rakavarnir og góð loftgæði

Það sem hefur einkennt þetta verkefni er sérlegur áhugi og virk aðkoma starfsfólks sveitarfélagsins auk þess sem áhersla var lögð á nána samvinnu við aðila í sveitarfélaginu.

Við afhendinguna sagði Lilja, framkvæmdarstjóri Svansins á Íslandi: „Það er alltaf ánægjulegt að sjá verkefni ná þessum áfanga, en við erum sérstaklega stolt af því að Sveitarfélagið Hornafjörður hafi stigið þetta mikilvæga skref og sýnt í verki hvernig sveitarfélög geta verið leiðandi í umhverfismálum.“

Við hvetjum áhugasöm sveitarfélög til að hafa samband við okkur á svanurinn@uos.is

Hér má einnig sjá skoðanagrein sem birtist í fyrra um tækifæri sem liggja hjá sveitarfélögum þegar kemur að vistvænni mannvirkjagerð.

Fleiri fréttir