Byggingarverktakinn BYGG hlýtur sitt annað leyfi fyrir Svansvottaðar endurbætur
Frá vinstri: Karl Elí Þorgeirsson verkefnastjóri þjónustudeildar Bygg, Kristinn Freyr Ómarsson verkstjóri og rakavarnafulltrúi Bygg, Karl Ómar Jónsson verkefnstjóri verksins hjá Bygg, Bergþóra Góa Kvaran sérfræðingur Svansins, Elva Dögg Pálsdóttir mannauðsstjóri Bygg, Ágúst Helgason annar eigandi AJ raf, Sindri Snær Oddgeirsson verkefnastjóri Bygg, Valgeir Rúnarsson gæða- og öryggisstjóri Bygg
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars, BYGG, hafa nú fengið sitt annað leyfi fyrir Svansvottaðar endurbætur á Borgartúni 27, áfanga 2 verkefnisins. Með leyfinu bætast 3. og 4. hæð hússins við Svansvottunina og eru nú alls 7 af 8 hæðum byggingarinnar vottaðar.
Í þessum áfanga voru Svansvottaðir 1.719 m², en í fyrsta áfanga voru 3.509 m² vottaðir. Samtals eru því nú 5.228 m² í húsinu Svansvottaðir. Um er að ræða stærsta endurbótarverkefni sem hefur hlotið Svansvottun á Íslandi til þessa.
Í fyrsta áfanga voru skrifstofur KPMG ásamt jarðhæð hússins vottaðar. Í áfanganum sem nú bætast við eru skrifstofurými sem leigð eru út til mismunandi leigutaka. Þar skiptir Svansvottunin miklu máli fyrir þá sem nýta rýmin daglega og dvelja þar langan tíma, enda er sérstök áhersla lögð á heilnæma innivist.
Kröfur Svansvottunar fela meðal annars í sér að framkvæmdar eru úttektir áður en niðurrif hefst, þar sem skimað er fyrir spilliefnum, raka og öðrum áhættuþáttum. Einnig er gerð krafa um að skipaður sé rakavarnarfulltrúi sem tryggir að rakavarnir séu gerðar á framkvæmdartíma. Sérstök loftgæðaáætlun er unnin og loftræsikerfi hönnuð með það að markmiði að tryggja góð loftgæði. Þá eru skaðleg efni í byggingarefnum takmörkuð, enda er þekkt að ný byggingarefni geti losað efni út í inniloft, sérstaklega fyrst eftir uppsetningu.
Svansvottunin staðfestir þannig að endurbæturnar á Borgartúni 27 uppfylli strangar kröfur um umhverfisvernd, heilsu og gæði – til hagsbóta fyrir bæði eigendur, leigutaka og umhverfið.
Fleiri fréttir
5. febrúar 2026
Byggingarverktakinn BYGG hlýtur sitt annað leyfi fyrir Svansvottaðar endurbætur
22. desember 2025
Metár í Svansleyfisveitingum árið 2025
11. desember 2025
IKEA fær Svansvottun á valdar eldhúsinnréttingar
4. desember 2025
