Endurskoðuð gjaldskrá Svansins
Í lok síðasta árs var samþykkt ný og endurskoðuð gjaldskrá* fyrir norræna umhverfismerkið Svaninn nr. 1445/2023. Helstu breytingar snúa að því að því að hækka gjöld í samræmi við aukinn kostnað og samstíga því að auka samræmi á milli gjaldskráa Norðurlandanna.
Tilefni þykir til að lista upp helstu breytingar sem samþykktar voru:
Umsóknar- og endurnýjunargjald Svansins
- Almennt hækkuð, en gjöldin höfðu ekki verið hækkuð í rúman áratug og endurspegluðu þ.a.l. ekki þær hækkanir sem hafa orðið vegna kostnaðarliða vegna vinnu við vottunina.
- Vegna vottunar á vörum var bætt við e- og f-lið 2.gr. gjaldskrárinnar svo tryggja megi að umsóknar- og endurnýjunargjöld nái í auknum mæli utan um vinnu stofnunarinnar þegar kemur að vottun á vörum. Þetta er þar sem fjölmargar vörur geta verið undir hverri umsókn og fjöldi vara hefur mikil áhrif á vinnuframlag stofnunarinnar.
- Afsláttur var innleiddur í fermetragjaldi fyrir nýbyggingar og endurbætur bygginga fyrir hvern fermetra umfram 20.000 fermetra.
Árgjald Svansins
- Lágmarksárgjald var hækkað í 4. gr. gjaldskrárinnar
- Hámarksárgjald var lækkað í 1-lið til samræmingar við norrænu gjaldskrá umhverfismerkisins
Hér má sjá uppfærða gjaldskrá í heild sinni.
Hér má svo sjá hvar hún birtist í stjórnartíðindum.
*Í 4. mgr. 35. gr. laga nr. 7/1998 kemur fram að stofnuninni sé heimilt að innheimta þjónustugjald fyrir ýmis störf tengd umhverfismerkjum, í samræmi við gjaldskrá sem ráðherra setur. Í 22. gr. reglugerðar nr. 160/2017 um umhverfismerki er einnig fjallað um gjaldtökuheimildir Umhverfisstofnunar og gjaldskrá sem setja skal hvað varðar eftirlits- og umsóknargjald sem stofnunin innheimtir vegna vinnu sinnar í tengslum við umhverfismerki.