18. febrúar 2026

Krónan með flestar Svansvottaðar dagvöruverslanir í heiminum

Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins, veitir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, staðfestingu á endurvottun.

Á miðvikudaginn síðasta lauk Krónan formlega við endurvottun á öllum verslunum sínum. Endurvottunin kemur í kjölfar endurskoðunar á viðmiðum Svansins fyrir dagvöruverslanir, þar sem ákveðið var að herða ýmsar kröfur.

Með breyttum kröfum stóð Krónan frammi fyrir vali: að sækja um endurvottun samkvæmt nýjum og strangari skilyrðum eða missa Svansvottunina. Fyrirtækið tók áskoruninni af festu og hóf umfangsmikið endurvottunarferli.

Krefjandi uppfærslur

Gerðar voru töluverðar breytingar frá síðustu útgáfu Svansvottunarviðmiðanna til þeirra nýju. Ein veigamesta breytingin er sú að nú þarf hver og ein verslun að uppfylla allar kröfur Svansins og því er ekki lengur tekið meðaltal af keðjunni í heild sinni.

Auk þess er nú meiri áhersla lögð á orkunýtni og orkusparnað og var hlutfallið af umhverfisvottuðum og lífrænum vörum sem Krónan skuldbindur sig til að selja hækkað töluvert frá fyrri viðmiðum.

„Slíkar breytingar geta reynst krefjandi enda mótast eftirspurn af ýmsum utanaðkomandi þáttum, meðal annars verðbólgu. Krónan brást við þessu með markvissum aðgerðum sem skila sér í aukinni eftirspurn, sem er einmitt markmið vottunarinnar – að aðstoða neytendur að velja vel fyrir heilsu og umhverfi“ segir Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi.

Svansvottunin byggir á skýrum markmiðum, mælanlegum aðgerðum, reglulegri eftirfylgni og umbótum sem Krónan hefur tekið föstum tökum.

Krónan leiðandi á Norðurlöndunum

Að ljúka endurvottunarferlinu er mikið afrek og er Krónan nú leiðandi hjá Svaninum í þessum flokki. Krónan rekur nú flestar Svansvottuðu dagvöruverslanir í heiminum og er ein af aðeins tveimur verslunarkeðjum á heimsvísu sem bera þessa vottun.

Við þökkum Krónunni innilega fyrir ánægjulegt samstarf og óskum þeim til hamingju með áfangann.

 

Góður hópur forsvarsfólks Krónunnar og Svansins kom saman og fagnaði áfanganum.

Fleiri fréttir