fbpx
3. október 2024

Leikskólinn Urriðból fyrsti leikskólinn til að hljóta Svansvottun á Íslandi

Í dag hlaut Garðabær fyrsta Svansleyfið sem veitt hefur verið til sveitarfélags fyrir Svansvottaða byggingu. Verkefnið er jafnframt fyrsta leikskólaverkefnið sem hlýtur Svansvottun samkvæmt nýbyggingarviðmiðum Svansins.

Leikskólinn, sem nefnist Urriðaból er úr krosslímdum timbureiningum (CLT) sem hýsir sex deildir fyrir 96 börn og hlaut verkefnið einnig nýlega Grænu skófluna, umhverfisverðlaun í byggingariðnaðinum sem veitt eru árlega.

„Það er afskaplega mikill heiður að taka á móti þessari viðurkenningu, fyrst sveitarfélaga. Hér eru gerðar ríkar kröfur til efnis og gæða og það er gaman að upplifa kraftinn og gleðina í leikskólasamfélaginu hér í fyrsta svansvottaða leikskólanum á Íslandi“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar sem tók við Svansleyfinu fyrir hönd Garðabæ.

Viðmið Svansins setja strangar kröfur er varða orku og loftslagsmál, hringrásarhagkerfið og er ekki síst lögð áhersla á gæði byggingarinnar, góða innivist og loftgæði. Þegar kemur að byggingum sem hannaðar eru fyrir viðkvæma hópa eins og yngsta hluta samfélagsins er gríðarlega mikilvægt að huga að efnanotkun innandyra en Svansvottunin gerir það að verkum að lágmarka skaðleg efni í byggingarvörum.

Það skiptir miklu máli hvaða byggingar- og efnavörur eru notaðar á framkvæmdartíma en það er ekki síður mikilvægt að vörur sem keyptar eru inn í rekstri skólans séu einnig valin af gaumgæfni og er því sérstaklega ánægjulegt að leikskólinn verður einnig rekinn sem heilsuleikskóli af Skólar ehf. sem leggja upp með að stuðla að heilnæmu umhverfi fyrir börnin.

Leikskólinn Urriðaból er fjórða verkefnið sem hlýtur Svansvottun í Urriðaholti sem er með BREEAM umhverfisvottað skipulag og er hvetjandi að sjá hvernig umhverfisvottað skipulag getur stutt við umhverfisvottaðar framkvæmdir.

Fleiri fréttir