Málþing Svansins um Svanvottaðar byggingar haldið í fyrsta sinn
Málþingið var afar vel sótt.
Umsóknir um Svansvottun bygginga hefur aukist statt og stöðugt síðustu ár. Á þeim tíma hefur skapast mikil reynsla í byggingargeiranum. Þar til nú hefur ekki verið sérstakur vettvangur fyrir aðila sem koma að Svansvottun bygginga til að koma saman, skiptast á þekkingu, ræða algeng vandamál og mynda tengsl. Það var því mikil ánægja með fyrstu málstofuna fyrir Svansvottaðar byggingar: Reynsla og ráðleggingar, sem var haldin í samstarfi við Iðan fræðslusetur.
Dagskráin var fjölbreytt, sérfræðingar Svansins fóru yfir mikilvæg atriði í umsóknarferlinu, og reynsluboltar úr geiranum gáfu mikilvæga innsýn í sína reynslu af Svansvottunarferlinu og útboðsgögnum. Auk þess var rætt um mikilvægi góðs samstarfs verktaka, verkkaupa og ráðgjafa. Seinni hluti málþingsins var svo nýttur í umræður.
Við þökkum öllum sem komu að viðburðinum eða mættu kærlega fyrir.
Fleiri fréttir
17. mars 2026
Svansvottuð málning og lökk nú leyfileg í BREEAM vottaðar byggingar
6. mars 2026
Svansvottaðar sápur frá Tandur fást nú á fjölförnum stöðum á Íslandi
5. mars 2026
Málþing Svansins um Svanvottaðar byggingar haldið í fyrsta sinn
18. febrúar 2026
