Matstofa Orkuveitunnar er nýr Svansleyfishafi

Matstofa Orkuveitu Reykjavíkur er komin í hóp þeirra mötuneyta sem hlotið hafa Svansvottun hérlendis. Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur og matstofunnar sýnir þannig í verki að þau setja umhverfismálin í forgang í sinni starfssemi og geta verið stolt af þessu afreki.
Ferlið hefur ekki gengið hrakfallalaust fyrir sig en í því miðju þurfti Orkuveitan að skipta um húsnæði og var þá hluti vinnunnar kominn á byrjunarreit. Það er því enn meiri sigur að afrekinu sé náð. Þess má geta að framkvæmdir eru nú í gangi í núverandi húsnæði Orkuveitunnar sem er í Svansvottunarferli.
Það er ekki hlaupið að því að fá Svansvottun fyrir mötuneyti, enda tekur hún á öllum lífsferli þjónustunnar, með áherslu á þá þætti sem hafa hvað mestu umhverfisáhrifin. Meðal annars skulu innkaup matvæla vera að stórum hluta lífræn og með lægra kolefnisspor. Áhersla er einnig lögð á úrgangsforvarnir, t.d. með aðgerðum gegn matarsóun með skýrum mælingum og miðlun til gesta mötuneytisins. Efnavara til daglegra þrifa þarf einnig að vera umhverfisvottuð til að takmarka skaðleg efni í umhverfi starfsfólks og gesta og svona mætti lengi telja.
Allt er þetta gert í þágu umhverfisins, en ekki síður heilnæmis starfsfólks og gesta mötuneytisins, enda fer það oftast saman – það sem er betra fyrir umhverfið er betra fyrir okkur og öfugt.
Það sýnir mikla ábyrgð og elju að taka þetta skref, og við óskum Matstofu Orkuveitunnar innilega til hamingju með árangurinn og Svansvottunina.