fbpx
6. febrúar 2025

Opið umsagnarferli: Glæný viðmið Svansins fyrir viðburði

Nú gefst kostur á að gera athugasemdir við ný viðmið Svansins fyrir viðburði (117). Svanurinn tekur mið af öllum lífsferlinum og setur strangar kröfur sem varða heilsu fólks og umhverfið.

Hér má finna drög af viðmiðunum og frekari upplýsingar um af hverju hver krafa er sett.

 

HELSTU KRÖFUR: 

  • Strangar kröfur um orkunotkun og losun koltvísýrings.
  • Kaldir drykkir bornir fram í fjölnota ílátum og einungis leyfilegt að nota einnota ílát sem uppfylla strangar umhverfiskröfur
  • Óþarfa neysla er takmörkuð og strangar umhverfikröfur eru settar á skraut, varning og gjafir til þátttakenda.
  • Boðið er upp á mat með lægra umhverfisspor, til að mynda lífrænan mat og drykki sem og mat úr jurtaríkinu.
  • Starfsfólk og birgjar taka þátt í umhverfisstarfinu.

 

HVER GETA SENT INN UMSÖGN? 

Öll geta sent inn umsögn, hvort sem það eru einstaklingar, fyrirtæki eða stofnanir sem hafa áhuga á að taka þátt í þróunarvinnu viðmiða Svansins. Athugasemdir frá hagsmunaaðilum eru mikilvægur þáttur í vinnunni við að þróa ný viðmið og okkur þætti vænt um ef upplýsingum um opna umsagnarferlið væri dreift til þeirra sem það gæti varðað.

 

HVERNIG Á AÐ SKILA INN UMSÖGN?

Athugasemdir skulu sendar inn hér eigi síðar en 23. mars 2025. Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við svanurinn@uos.is.

 

HVAÐ SVO?

Þegar umsagnartímanum er lokið verða umsagnir teknar saman, þær metnar og ný endurskoðuð tillaga af viðmiðunum lögð fyrir umhverfismerkisráð allra Norðurlandanna. Í kjölfarið mun Norræna umhverfismerkisráðið taka ákvörðun um útgáfu viðmiðanna.

Allar umsagnir sem koma fram í þessu ferli og svör Svansins við þeim verða birtar í ákvörðun Norræna umhverfismerkisráðsins sem verður aðgengileg á heimasíðu Svansins í tengslum við birtingu nýju útgáfu viðmiðanna.

 

Við hlökkum til að heyra þínar athugasemdir fyrir 23. mars 2025.

Fleiri fréttir