Safír fyrstir til að hljóta Svansvottun samkvæmt nýjum nýbyggingarviðmiðum

Byggingaverktakinn Safír hefur stigið stórt skref í átt að sjálfbærari framtíð með aðgerðum sem stuðla að vistvænni byggingariðnaði. Um er að ræða Orkureit A sem er stærsta verkefnið hingað til sem hlýtur Svansvottun í einu lagi – og jafnframt fyrsta verkefnið sem hlýtur vottun samkvæmt nýjustu útgáfu Svansins fyrir nýbyggingar, útgáfu 4. Saman eru þetta fjórir reitir og yfir 400 íbúðir sem verða byggðar en nú eru íbúðir komnar í sölu fyrir A og D reit.
Tímamóta verkefni
Svansvottunin byggir á heildrænni nálgun á umhverfisáhrifum bygginga og tekur meðal annars til efnisvals, orkunýtni, innivistar, hringrásarhagkerfisins og fleiru. „Viðmið Svansins eru hert reglulega til að samræmast þeirri tækni og þróun sem byggist upp á markaðinum hvað varðar umhverfismál. Í þessari nýjustu útgáfu nýbyggingarviðmiðanna voru kröfurnar hertar töluvert ásamt því að nýjar kröfur bættust við. Það er því virkilega mikill sigur að vera fyrst til að hljóta Svansleyfi samkvæmt þessum nýju viðmiðum“ segir Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins.
Hilmar Ágústsson, framkvæmdastjóri Safír segir „það hafa verið mikilvægt fyrir Safír að byggja íbúðir sem standast háar kröfur um innivist ásamt því að vera leiðandi í umhverfismálum sem verða sífelt meira áberandi í byggingarframvkæmdum.“ Það er mikilvægt að fyrirtæki eins og Safír axli ábyrgð og sýni frumkvæði og leggi sitt að mörkum til að takmarka umhverfisáhrif bygginga og leiða þróunina áfram.
Svanurinn kemur til móts við BREEAM
Ánægjulegt er að sjá hvernig umhverfisvottanir geta unnið saman en deiliskipulag Orkureitsins hefur verið vottað samkvæmt BREEAM comunities og er fyrsta verkefnið hér á landi til að hljóta einkunina excellent. Vottunin gerir kröfur um að reiturinn uppfylli ákveðin skilyrði sem samsvara að einhverju leiti því sem Svansvottunin leggur upp með.
Þess vegna hafa frá upphafi hafa verið settar metnaðarfullar kröfur fyrir reitinn, meðal annars um betri orkunýtni bygginga, notkun blágrænna ofanvatnslausna og vistvænt efnisval. Safír hefur tekið þessum kröfum fagnandi og gengið lengra. Fyrirtækið hefur til að mynda þegar valið álklæðningar með háu endurvinnsluhlutfalli, endurnotað timbur sem var á lóðinni fyrir og sýnt vilja til að vinna markvisst með umhverfismál í hönnunar- og framkvæmdastigum.
Slíkir ákvarðanir undirstrika mikilvægi þess að byggingarverktakar taki virkan þátt í vistvænna efnisvali og sjálfbærri þróun. Frumkvæði Safírs í þessu verkefni sýnir að metnaður og ábyrgð geta skilað raunverulegum árangri – bæði fyrir umhverfið og framtíð mannvirkjageirans.