Svansvottaðar sápur frá Tandur fást nú á fjölförnum stöðum á Íslandi
Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins, veitti Brynleifi Björnssyni, gæðastjóra Tandur leyfið. Á myndinni eru einnig Arnar Garðarsson, framkvæmdastjóri Tandur, og Ervin Shala, framleiðslustjóri.
Tandur hlaut á dögunum Svansvottun fyrir fjórar vörur í flokki snyrtivara. Þær vörur eru Hand- og Baðsápa – sem meðal annars er notuð í sundlaugum Reykjavíkur, SH-41 handsápa fyrir matvælaiðnað, Softex froðusápa og Handex handsápa.
„Við erum gríðarlega stolt af þessum áfanga. Að verða fyrst til að Svansvotta vörur í flokki snyrtivara er mikilvægt framfaraskref fyrir íslenska framleiðslu og staðfestir þann metnað sem við leggjum í að þróa umhverfisvænar og vandaðar vörur,“ segir Arnar Garðarsson framkvæmdarstjóri Tandur.
Það er sérstaklega mikilvægt að vanda valið á vörum sem eru í beinni snertingu við líkamann. Það berast sífellt fleiri tilkynningar um hættulegar vörur í umferð í Evrópu og þar eru snyrtivörur efst á lista. Efni sem finnast í þessum vörum geta meðal annars valdið hormónatruflunum, útbrotum eða, til langs tíma, illkynja sjúkdómum. Umhverfisvottun sem staðfestir öruggt efnainnihald er mikið heillaskref, sérstaklega á fjölförnum stöðum eins og sundlaugum þar sem fjölbreyttir hópar með ólíkar þarfir mætast.
„Svansvottun er ekki bara umhverfisvottun heldur eru heilsusjónarmiðum gert jafn hátt undir höfði. Að fara í þessa vegferð er mikill gæðastimpill enda mikið traust sem fylgir vottuninni,“ segir Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi.
Við þökkum Tandur innilega fyrir ánægjulegt samstarf og óskum þeim til hamingju með áfangann.
Elínborg Erla Knútsdóttir, markaðs- og þjónustustjóri Tandur, ásamt fulltrúum Svansins við leyfisveitinguna.
Fleiri fréttir
17. mars 2026
Svansvottuð málning og lökk nú leyfileg í BREEAM vottaðar byggingar
6. mars 2026
Svansvottaðar sápur frá Tandur fást nú á fjölförnum stöðum á Íslandi
5. mars 2026
Málþing Svansins um Svanvottaðar byggingar haldið í fyrsta sinn
18. febrúar 2026
