17. mars 2026

Svansvottuð málning og lökk nú leyfileg í BREEAM vottaðar byggingar

Svansvottuð málning og lökk hafa nú verið formlega samþykkt til notkunar í BREEAM-vottuðum byggingum. Í nýjustu uppfærðu viðmiðum uppfærslu leiðbeiningarits BREEAM, GN22, hefur það verið skrifað sérstaklega inn að Svansvottuð málning sé sjálfkrafa samþykkt í BREEAM vottaðar byggingar þar sem verið er að sækja stig fyrir Hea 02 um minni losun skaðlegra efna frá byggingarvörum.

Samþykktin kemur í kjölfar endurskoðunar á viðmiðum Svansins fyrir málningu. Nýjasta útgáfan, Paint and varnishes 096, útgáfa 4, felur í sér hertar kröfur um meðal annars TVOC losun, formaldehýð losun, VOC innihald og losun krabbameinsvaldandi efna í flokki 1A og 1B sem BREEAM krafa Hea 02 tekur til. Þessi viðmið eru nú jafn ströng eða strangari en almennar kröfur BREEAM á þessu sviði (Hea 02 General emission criteria).

Af þessu tilefni fór Svanurinn á Íslandi í markvisst ferli, í samstarfi við Eflu verkfræðistofu, þar sem viðeigandi gögn voru send til BREEAM til að fá Svansvottaða málningu viðurkennda innan kerfisins og voru gögnin samþykkt.

Við fögnum þessum mikilvæga áfanga og hvetjum öll sem koma að hönnun, framkvæmd og vottun BREEAM-bygginga til að kynna sér málið og nýta sér Svansvottaða málningu sem hluta af vistvænum og heilsusamlegum byggingarlausnum.

Fleiri fréttir