Vegvísir að vistvænni mannvirkjagerð – viðbætur

Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila í byggingariðnaði sem hefur það markmið að styðja við vistvænni mannvirkjagerð á Íslandi. Verkefnið á meðal annars rætur að rekja til aðgerða stjórnvalda í loftslagsmálum og hefur frá upphafi lagt áherslu á víðtæka þátttöku úr allri virðiskeðju greinarinnar. Á árunum 2020–2022 var lögð áhersla á að greina kolefnislosun, setja markmið um samdrátt og móta aðgerðir til ársins 2030. Frá 2022 hefur innleiðing þessara aðgerða verið í forgrunni. Nýtt stöðumat árið 2024 leiddi til þess að bætt var við 16 nýjum aðgerðum, sem gera heildarfjölda þeirra 90.
Fulltrúar frá Umhverfis- og Orkustofnun (UOS) hafa átt virkan þátt í verkefninu frá upphafi og setið í verkefnisstjórn Byggjum grænni framtíð. Þeir hafa komið að mótun aðgerðaráætlunarinnar og lagt til sérfræðiþekkingu við þróun og forgangsröðun aðgerða sem miða að því að draga úr umhverfisáhrifum mannvirkjagerðar á Íslandi.
Meðal þeirra aðgerða sem tengjast meðal annars umhverifsvottunum eru aðgerðirnar 1.8 Leiðbeiningar um umhverfiseiginleika byggingarvara, 1.9 Nýsköpun í náttúrulegum lausnum og efnum og 5.2.9 Fræðsla og hvatar fyrir umhverfisvottaðar endurbætur. Aðgerðirnar munu vera unnar ásamt fleiri samstarfsaðilum að Umhverfis- og orkustofnun og mun Svanurinn spila þar hlutverk. Aðgerðirnar leggja áherslu á að efla þekkingu, suðla að sjálbærarar byggingarefnavali og styrkja umhverfisvottanir þegar kemur að endurbótum.
Við hlökkum til að takast á við þessar nýju viðbætur og hvetjum áhugasama til að kynna sér málið frekar inn á heimasíðu Byggjum Grænni Framtíðar