fbpx

Með tilkomu nýrra viðmiða fyrir nýbygginga, New buildings útgáfu 4 sem tóku gildi snemma árs 2023  hefur verið tekin í notkun ný byggingarvörugátt sem nefnist SCDP, Supply chain declaration portal.

Ástæðan fyrir þessari nýju vörugátt er að öll gagnaskil eru að flytjast á rafrænt form hjá Svaninum og er búið að innleiða þá vinnu fyrir nýbyggingaviðmiðin. Skilin munu því eiga sér stað í gegnum vefgátt sem nefnist NEP, Nordic Ecolabel Portal sem umsækjendur fá aðgang að en þar geta þeir einnig leitað að samþykktum og vottuðum vörum.

NEP vefgáttin er ætluð fyrir gagnaskil frá umsækjendum sem eru að votta byggingar. Umsækjendur skrá sig inn á sama stað og þeir skráðu sig inn á „gömlu“ vörugátt Svansins, sem gildir fyrir nýbyggingarviðmiðin útgáfu 3. Þegar umsækjendur hins vegar skrá sig inn sem skráðir eru í útgáfu 4 birtist annarsskonar viðmót sem gefur þeim færi á að skila inn gögnum.

SCDP vörugáttin er ætluð fyrir birgja, söluaðila og framleiðendur byggingarvara til að senda inn umsókn fyrir efnissamþykktum.

Hvernig fæ ég aðgang að SCDP?

Til að senda inn umsókn fyrir efnissamþykkt þarf fyrst að fá aðgang að SCDP. Það er gert með því að heimsækja þessa slóð og fylla út PoA (Power of Attorney).  Inni á síðunni er valið How to get started > Get login credentials > We have no „competent contact“  person yet (Power of Attorney) > Power of Attorney form

Athugið að hvert fyrirtæki þarf einungis að fylla út PoA einu sinni ef annar starfsmaður úr sama fyrirtæki hefur áður sótt um aðgang að SCDP og skrifað undir PoA er valið How to get started > Get login credentials > We have login but need more

Það getur tekið allt að tvo virka daga að fá aðgang að SCDP eftir að fyllt hefur verið út PoA en þegar það er komið skráið þið ykkur inn hér

Hvernig sendi ég inn umsókn fyrir efnissamþykkt

Hér má nálgast ítarlegar leiðbeiningar sem fara í gegnum umsóknarferlið skref fyrir skref. Mikilvægt er að tilgreina réttan byggingarvöruflokk en þá leiðir kerfið þið áfram og dregur fram rétta „viðauka“ sem þú fyllir út.

Nú mega bæði framleiðendur, birgjar og söluaðilar senda inn umsókn fyrir efnissamþykkt ef viðkomandi aðilar eru með allar upplýsingar um vöruna sem Svanurinn biður um.

Vörur sem samþykktar eru inni á SCDP gilda fyrir allar útgáfur byggingarviðmiðanna, þ.e nýbyggingaviðmiðin útgáfu 3 og 4 og endurbótaviðmiðin útgáfu 1 og 2 (útgáfa 2 mun taka gildi í mars á þessu ári)

„Gamla“ vörugáttin

Gamla vörugáttin eða HPP, Hus Produkt Portalen er ennþá í gildi á meðan umsækjendur eru enn að vinna í verkefnum sem fylgja útgáfu 3. Samþykktar vörur sem skráðar eru inn á HPP eru þó einungis samþykktar fyrir útgáfu 3 í nýbyggingarviðmiðunum og útgáfu 1 í endurbótaviðmiðunum.

Íslenski efnislistinn

Fyrir útgáfu 3 í nýbyggingarviðmiðunum og útgáfu 1 í endurbótarviðmiðunum hefur verið notast við svokallaðan íslenska lista. Þegar byrjað var að Svansvotta byggingar hér á landi var takmarkað magn til af vörum sem voru samþykktar og var því mikilvægt að ferlið gengi hratt og örugglega fyrir sig að fá efni samþykkt. Því var ákveðið að leyfa ákveðna B leið þar sem umsækjendur, söluaðilar og fleiri sendu viðeigandi viðauka á pdf-formi á framleiðendur, fengu þá til að fylla út skjölin og komu þeim svo útfylltum til Svansins á Íslandi. Ef vörurnar fengu samþykki eftir yfirferð Svansins var þeim bætt á íslenska listann.

Þar sem íslenski listinn einskorðaðist við íslenskan markað inniheldur hann mun færri samþykktar vörur heldur en vörugáttirnar. Vörugáttirnar eru stærsti vettvangurinn til að leita að samþykktum og vottuðum vörum og þær innihalda tugi þúsunda vara sem eru bæði samþykktar og vottaðar.

Einnig skapaðist sú hefð að gefa út samþykktarblöð þegar farið var þessa íslensku B leið til að viðkomandi væri með eitthvað í höndunum til staðfestingar. Ákveðið hefur verið að hætta að gefa út samþykktarblöðin þar sem það verklag tíðkast ekki annarsstaðar hjá Svaninum. Ekki þarf aðra staðfestingu á að vara sé samþykkt í Svansvottuð hús en að hún finnist á vörugáttum Svansins.

Vakið skal athygli á að leyfishafi ber alltaf ábyrgð á því að kröfur Svansins séu uppfylltar og því mikilvægt að athugað sé hvort að vara sé samþykkt í vörugáttunum áður en hún er keypt – hvort sem að söluaðili hafi merkt hana sem leyfilega eða ekki.