Hvað er Svanurinn?
Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem var komið á fót af Norrænu ráðherranefndinni árið 1989. Meginmarkmið Svansins er að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti. Á Íslandi er Umhverfisstofnun umsjónaraðili Svansvottunarinnar og vinnur náið með skrifstofum Svansins á öllum Norðurlöndunum.
Til þess að vara eða þjónusta geti hlotið Svansvottun verður norræni Svanurinn að hafa mótað kröfur fyrir viðkomandi vöru- eða þjónustuflokk. Svanurinn er umhverfismerki af Týpu 1 samkvæmt ISO 14024 umhverfisvottunarstaðlinum og er einn af stofnmeðlimum Global Ecolabelling Network.
Kröfur Svansins tryggja að vottuð vara sé betri fyrir umhverfið og heilsuna, með því að:
- skoða allan lífsferilinn og skilgreina helstu umhverfisþætti
- setja strangar kröfur um helstu umhverfisþætti sem skilgreindir hafa verið, svo sem; efnainnihald og notkun skaðlegra efna, flokkun og lágmörkun úrgangs, orku- og vatnsnotkun sem og gæði og ending
- passa að þekkt hormónaraskandi og ofnæmis- eða krabbameinsvaldandi efni séu ekki notuð
- herða kröfurnar reglulega þannig að Svansvottaðar vörur og þjónusta séu í stöðugri þróun
Hvað er hægt að votta?
Lífsferilsmerki
Svansmerkið er lífsferilsmerki sem þýðir að í allri viðmiðaþróun er leitast við að hanna kröfur sem taka á öllum lífsferli vörunnar eða þjónustunnar sem um ræðir.
Vottunin gildir jafnlengi og viðmiðin gilda. Viðmið eru gefin út til 3-5 ára fyrir mismunandi vöru- og þjónustuflokka.
Að því tímabili loknu fer fram endurskoðun þar sem viðmiðin eru rýnd í samhengi við þær breytingar sem hafa orðið. Eftir endurskoðun er tekin ákvörðun um hvort hægt sé að aðlaga viðmiðin með minniháttar breytingum og þ.a.l. framlengja gildistíma þeirra eða hvort fara þurfi í heildræna endurframsetningu og eru viðmiðin þá endurútgefin með breyttum áherslum. Öll fyrirtæki sem eru með vöru eða þjónustu vottaða samkvæmt eldri viðmiðum fara í gegnum svokallaða endurvottun við útgáfu nýrra viðmiða og fá um ársfrest til að vinna sig í gegnum það ferli.
Hlutverk Umhverfisstofnunar
Umhverfisstofnun er umsjónaraðili Svansins á Íslandi. Starfsfólk Umhverfisstofnunar sér um að aðstoða fyrirtæki í gegnum vottunarferlið, fara í úttektarheimsóknir, útgáfu leyfa auk þess að vinna að markaðssetningu og fræðslu um umhverfismerki.
Umhverfismerkisráð
Umhverfismerkisráð er samstarfshópur fulltrúa helstu hagsmunaaðila um umhverfismerki og er Umhverfisstofnun til ráðgjafar um stefnumótun Svansins. Í umhverfissmerkisráði eiga sæti fulltrúar frá Umhverfisstofnun, Neytendasamtökunum, Nýsköpunarmiðstöð, Samtökum iðnaðarins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustu, Staðlaráði Íslands og frá landsbundnum félagasamtökum sem vinna að umhverfisvernd.
Starfsfólk Svansins
Bergþóra Kvaran
Sérfræðingur
bergthora.kvaran@ust.is
591 2000
Birgitta Stefánsdóttir
(í leyfi)
birgittas@ust.is
591 2000
Ester Alda Hrafnhildar Bragadóttir
Sérfræðingur
esterahb@ust.is
591 2000
Guðrún Lilja Kristinsdóttir
Framkvæmdastjóri
gudrunk@ust.is
591 2000
Katla Þöll Þórleifsdóttir
Sérfræðingur
katla.thorleifsdottir@umhverfisstofnun.is
591 2000
Hin Norðurlöndin
Tengiliðaupplýsingar fyrir Svaninn á Norðurlöndunum.
Fréttabréf
Við gefum út fréttabréf til þess að miðla fréttum og mikilvægum upplýsingum um Svansmerkið á Íslandi, fyrir leyfishafa, neytendur og aðra áhugasama.
Skráðu þig á póstlistann okkar og þú færð næsta fréttabréf!