Norræn ungmennaherferð

Fleiri hlutir í körfunni, fleiri föt í skápnum, fleiri húðvörur í snyrtiveskinu, fleiri orkudrykkir í ísskápnum, fleiri „haul“ á TikTok, fleiri snöpp fyrir „streakið“ …

Neysla er bæði afþreying og menning og mörg ungmenni móta sjálfsmynd sína út frá neyslu þar sem þau leitast stöðugt í að eiga meira og fleira.

Umhverfið og sjálfbærni gegna hins vegar ekki stóru hlutverki í daglegu lífi yngri kynslóðarinnar. Margt bendir þó til þess að mörgum ungmennum finnist þau minna virði og finni fyrir einmanaleika og streitu.

Það er gríðarleg pressa að vera stöðugt að móta ímynd sína, fylgjast með tískustraumum, kaupa nýja hluti og vera virk á samfélagsmiðlum. Þetta skilur eftir lítinn tíma til að átta sig á hver maður er, hvað maður vill og hvað raunverulega skiptir máli.

Frá ofneyslu til innihaldsríks lífs

Með herferðinni „Lifðu ríkara“ (e. Live richer) vill norræna umhverfismerkið Svanurinn hvetja ungt fólk á aldrinum 15–19 ára til að tileinka sér sjálfbærari lífsstíl – lífsstíl þar sem hægt er að lifa innihaldsríkara lífi með minni neyslu. Þetta er gert í samstarfi við áhrifavalda sem margir ungir einstaklingar treysta og líta upp til, á þeim miðlum sem þau nota nú þegar.

Kjarnaboðskapur herferðarinnar er að meðvitaðri neysla og kaup á færri óþarfa hlutum geti aukið vellíðan, frelsi og lífsgæði. Áhersla er lögð á að sjálfbær neysla þurfi ekki að vera fórn; hún getur þvert á móti verið ákjósanlegur kostur.

Þannig leitast herferðin við að tengjast daglegu lífi ungs fólks og varpa ljósi á hvernig, til dæmis,  „No-Spend-Challenge“ geti skilað meiri tíma, meiri hugarró, færri ákvörðunum, færri misheppnuðum kaupum, meiri pening, betri upplifunum og persónulegri stíl. Skiljanlega eru eigin hagsmunir oftast í fyrirrúmi þegar maður er á aldrinum 15-19 ára, og Svanurinn vill sýna hvernig þá er að finna í sjálbærari neysluháttum.

Herferðin stendur yfir frá lokum september fram í miðjan nóvember og er hluti af Norrænni áætlun um sjálfbæra neyslu styrktri af Norrænu ráðherranefndinni.

Herferðin er í gangi samtímis á öllum Norðurlöndunum með áhrifavöldum í hverju landi.

Áskorun um að kaupa ekkert óþarft

Fleiri frábærar upplifanir og meiri peningur. Færri óþarfa kaup og færri valkostir. Meiri tími, meiri hugarró, meiri gleði og einstakari stíll. Hljómar þetta ekki freistandi?

Skoraðu þá á sjálfan þig: Hættu öllum óþarfa kaupum næsta mánuðinn.

Að lifa ríkara lífi snýst ekki um að eiga meira; það snýst um að fá meira út úr því sem þú átt nú þegar – og verja tíma í það sem skiptir raunverulega máli fyrir þig.

Norræna umhverfismerkið Svanurinn skorar nú á nokkra áhrifavalda að taka þátt í áskorun um að kaupa ekkert óþarft („No-Spend Challenge“). Við hvetjum þig til að taka líka þátt!