
Vöru- og þjónustuflokkar
Aðeins er hægt að votta þær vörur og þjónustu sem Svanurinn hefur þróað viðmið fyrir. Svanurinn nær yfir um 60 vöruflokka og þar undir er hægt að votta um 200 mismunandi vörur. Hægt er að sjá vöruflokkana hér.
Um 95% Íslendinga þekkja Svaninn sem gerir merkið eitt þekktasta neytendamerki á markaði hérlendis. Svanurinn einfaldar einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum að velja vörur sem framleiddar eru með lágmarks áhrifum á umhverfið og heilsu. Svansvottun er markviss leið til að tryggja árangur í umhverfismálum og skapa sér sérstöðu á samkeppnismarkaði.
Þær vörur sem við sjáum í verslunum hérlendis eru að mestu fluttar inn frá Norðurlöndunum og vottaðar af Svaninum í einhverju Norðurlandanna. Það hefur aukist að íslenskir vöruframleiðendur sæki um Svaninn og vonandi eykst framboð af Svansvottuðum íslenskum vörum á næstu árum.
Þeir viðmiðaflokkar sem vottað hefur verið eftir hérlendis eru:
- 013 – Viðhaldsvörur fyrir farartæki
- 026 – Ræstiefni
- 041 – Prentþjónustur
- 055 – Hótel og aðrir gististaðir
- 065 – Ræstiefni og fituleysir fyrir iðnað
- 076 – Ræstingaþjónusta
- 079 – Dagvöruverslanir
- 080 – Þvottaefni fyrir uppþvottavélar í iðnaðareldhúsum
- 089 – Nýbyggingar
- 096 – Innanhúsmálning og -lökk
- 099 – Fljótandi og loftkennd eldsneyti
- 102 – Viðhald og endurbætur mannvirkja
- 110 – Veitingarekstur og ráðstefnurými (án gistingar)
Hvað er hægt að votta
Gjaldskrá
Kostnaður við Svaninn skiptist í umsóknargjald sem greitt er þegar sótt er um og árgjald sem er greitt árlega eftir að fyrirtækið fær vottun (ath. neðangreint gildir ekki fyrir byggingar).
Umsóknargjald:
- 215.000 kr. fyrir lítil fyrirtæki (minna en 10 ársverk og heildarveltu undir 200. m.kr.)*
- 430.000 kr. fyrir stærri fyrirtæki*
*Ef sótt er um fleiri en 4 vörur undir einni umsókn er innheimt gjald fyrir hverja vöru umfram það að upphæð 65.000 kr. Ef sótt er um fleiri en 8 vörur undir vöruflokknum málning er innheimt gjald fyrir hverja vöru umfram það að upphæð 50.000 kr.
Árgjald*:
- 0,15% af árlegri veltu þjónustu
- 0,3% af árlegri veltu vottaðrar vöru
*Afsláttur ef velta fer yfir ákveðna upphæð og hágmarks- og lágmarksgjald fyrir hvern vöruflokk
Ítarefni
Tengiliður

Guðrún Lilja Kristinsdóttir
Sérfræðingur
lilja.kristinsdottir@uos.is
591 2000
Reynslusaga

Haukur Baldvinsson
aðstoðarframkvæmdastjóri Málningar
Af hverju völduð þið að Svansvotta ykkar vörur?
Umhverfisvottanir gera það að verkum að að neytandinn fær í hendurnar umhverfisvænar vöru sem hægt er að treysta þ.e.a.s þær eru vottaðar af hlutlausum aðila.
Eftir að við hjá Málningu kynntum okkur ferlið sem því fylgir að sækja um [Svans]vottun fyrir framleiðsluvörur okkar fengum við dygga aðstoð Umhverfisstofnunar við umsóknina og aðlögun umhverfiskrafna. Árið 2018 hlaut Málning hf svo vottun Norræna umhverfismerkisins og leyfi til að merkja tæplega 30 vörur með merki Svansins.
Hver er ávinningurinn af Svansvottun fyrir ykkur og umhverfið?
Einn helsti kosturinn fyrir okkur varðandi Svansvottun hefur verið að fá óháðan aðila til að setja viðmið fyrir okkur sem málningarfyrirtæki hvaða skilyrði þurfi að uppfylla svo hægt sé að kalla hana umhverfisvæna. Þannig höfum við fengið viðurkenningu á okkar vörum sem uppfylla slík skilyrði og einnig fengið ábendingar varðandi það sem betur mætti fara. Við gerum svo okkar til þess að betrumbæta og þróa okkar vörur í takt við þær kröfur sem gerðar eru til okkar. Með umhverfisvottun sem almenningur treystir er hann einnig líklegri til að velja umhverfisvottaða vöru fram yfir aðrar vörur sem ekki eru umhverfisvottaðar.
Mælir þú með því að fara í gegnum Svansvottunarferlið?
Já ég mæli með því að sækja um Svansvottun. Ferlið hefur verið okkur hjá Málningu lærdómsríkt, það hefur gefið okkur betri yfirsýn yfir hráefnin sem við erum að nota sem og til þeirra vara sem við framleiðum. En það sem stendur uppúr eftir að hafa farið í gegnum ferlið er hvatinn til þess að gera betur og þróa vörur sem hafa reynst vel í áratugi.