Opinn fyrirlestur um umhverfisvænni framkvæmdir
Opinn fyrirlestur um umhverfisvænni framkvæmdir fyrir heilsusamlegra heimili verður haldinn þann 1. nóvember n.k. Fyrirlesturinn verður í beinu streymi sem hægt er að nálgast í gegnum facebook viðburð fyrirlestursins.
Umfjöllunarefni
- Hvernig gerum við heimilið okkar umhverfisvænna?
- Hvernig vinnum við með umhverfisvænar lausnir í framkvæmdum á heimilinu?
- Hvað getur auðveldað okkur ákvarðanatöku í nýbyggingum
- Hvaða umhverfismerkjum getum við treyst?
Farið verður yfir atriði eins og umhverfisvottuð byggingarefni, innréttingar, umhverfimerki og fleira. Að auki verður skoðað hvernig megi skapa góða innivist með rakavörnum, efnisvali og svo framvegis.
Fyrir hverja?
- Almenning
- Hönnuði
- Arkitekta
- Verktaka
Hvað viljið þið vita um umhverfisvænni framkvæmdir?
Við hvetjum áhugsama til að senda okkur spurningar og vangaveltur fyrir fram svo að við getum mótað fyrirlesturinn eftir ykkar áhuga.
Fyrirlesari
Fyrirlesturinn flytur Bergþóra Kvaran, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun.
Ekki missa af áhugaverðum fyrirlestri um umhverfismál á mannamáli!
Fleiri fréttir
22. apríl 2026
Fræðslufundur um FSC/PEFC kröfur Svansins fyrir timbur og bambus
17. mars 2026
Svansvottuð málning og lökk nú leyfileg í BREEAM vottaðar byggingar
6. mars 2026
Svansvottaðar sápur frá Tandur fást nú á fjölförnum stöðum á Íslandi
5. mars 2026
