Smáragarður hlýtur Svansvottun fyrir endurbætur á skrifstofum BYKO
Smáragarður ehf. hefur verið afhent Svansleyfi fyrir endurbætur á skrifstofurými BYKO við Skemmuveg 2a í Kópavogi. Vottunin staðfestir að framkvæmdin uppfyllir stangar kröfur Svansins um umhverfisáhrif, efnisval og heilnæmari innivist.
Verkefnið er sérstaklega ánægjulegt þar sem það undirstrikar mikilvægt hlutverk þeirra fyrirtækja sem starfa í virðiskeðju mannvirkjagerðar við að stuðla að sjálfbærari byggingariðnaði. Smáragarður á rætur sínar að rekja til fasteigna BYKO og er í dag félag innan sömu samstæðu í eigu Norvik.
Svansvottun endurbóta leggur ríka áherslu á ábyrgt efnisval og að byggingarvörur uppfylli kröfur um umhverfis- og heilsufarslega eiginleika. Söluaðilar byggingarvara gegna þar lykilhlutverki þar sem þeir þjónusta oft umsækjendur í vottunarferlum og aðstoða við val á vörum sem standast kröfurnar. Með því að afla sér þekkingar á vottunarkerfum og beita henni í eigin verkefnum geta þeir sýnt mikilvægt fordæmi fyrir markaðinn og stutt við frekari framþróun sjálfbærra byggingaraðferða.
Einn af helstu ávinningum Svansvottunar er að stuðla að heilnæmara innilofti og betri innivist. Það skitir miklu máli á vinnustöðum þar sem starfsfólk ver stórum hluta dagsins innandyra. Kröfur Svansins um efni, efnamengun og loftgæði stuðla að betra vinnuumhverfi og aukinni vellíðan notenda húsnæðisins.
Á sama tíma og þessi áfangi næst er áhugavert að benda á að viðbygging við Skemmuveg 2a, þar sem skrifstofurnar eru staðsettar, er einnig í BREEAM vottunarferli. Það endurspeglar metnað eigenda til að byggja upp húsnæði sem tekur mið af umhverfislegum, félagslegum og rekstrarlegum þáttum sjálfbærni.
6. október 2026
28. september 2026
20. ágúst 2026
7. júlí 2026
