Loftslagsdagurinn 2026 fyrstur íslenskra viðburða til að hljóta Svansvottun
Frá vinstri: Chanee Jónsdóttir Thianthong, Ásta K. Helgadóttir, Nicole Keller, Guðrún Lilja Kristinsdóttir, Katrín Björg Jónsdóttir, Silja Björk Axelsdóttir, Þorbjörg Sandra Bakke, Bergþóra Góa Kvaran
Umhverfis- og orkustofnun hefur hlotið Svansleyfi fyrir Loftslagsdaginn 2026 og er þetta fyrsti viðburðurinn á Íslandi til að hljóta Svansvottun samkvæmt viðmiðum Svansins fyrir viðburði. Vottunin staðfestir að gerðar hafi verið markvissar ráðstafanir til að draga úr umhverfisáhrifum viðburðarins, allt frá veitingum og úrgangsstjórnun til samgangna og orkunotkunar.
Loftslagsdagurinn 2026 fór fram þann 28.október í Norðurljósasal Hörpu sem er Svansvottað ráðstefnurými. Með Svansvottun viðburðarins er stigið nýtt skref í átt að umhverfisvænna viðburðarhaldi á Íslandi.
Umhverfissjónarmið í öllum þáttum viðburðarins
Til að hljóta Svansvottun þurfa skipuleggjendur að uppfylla ítarlegar kröfur sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, sóun, úrgangsmyndun og notkun skaðlegra efna.
Á Loftslagsdeginum 2026 felst það meðal annars í að:
- bjóða upp á aukið hlutfall lífrænna hráefna og grænmetisrétta
- draga úr matarsósun með markvissri skipulagningu veitinga,
- nota ekki einnota borðbúnað
- nota lokaða kæla og orkusparandi hljóð- og myndbúnað,
- nýta endurhlaðanlegar rafhlöður í tækjum,
- lágmarka útreprentun ráðstefnugagna,
- tryggja sýnilega flokknaraðstöðu fyrir gesti og starfsfólk,
- hvetja til umhverfisvænni ferðamáta
- og nota umhverfisvottaðar ræstivörur
Mikil tækifæri til umbóta í virðburðahaldi
Á hverju ári eru haldnir fjölmargar ráðstefnur, fundir og viðburðir á Íslandi. Með markvissum aðgerðum er hægt að draga verulega úr umhverfisáhrifum þeirra, til dæmis með því að minnka matarsóun, draga úr útprentun, sleppa óþarfa kynningargjöfum og hvetja þátttakendur til að velja sjálfbærar samgöngur.
Svansvottun veitir skipuleggjendum skýrt verkfæri til að vinna að þessum markmiðum og gerir jafnframt gestum auðveldara að velja viðburði sem taka umhverfisábyrgð alvarlega
Hér má fræðast enn frekar um Svansvottaða viðburði
Fleiri fréttir
28. október 2026
Loftslagsdagurinn 2026 fyrstur íslenskra viðburða til að hljóta Svansvottun
16. október 2026
Tryggvagata 12A hlýtur Svansvottun og markar áfanga í vistvænni uppbyggingu JÁVERKs
6. október 2026
Smáragarður hlýtur Svansvottun fyrir endurbætur á skrifstofum BYKO
28. september 2026
