30. október 2026

Svansvottuð gólfefni og efnavörur nú leyfileg í BREEAM vottaðar byggingar

Svansvottuð gólfefni, gólfjöfnunarefni/flotefni og efnavörur hafa nú verið formlega samþykkt til notkunar í BREEAM-vottuðum byggingum. Í nýjustu uppfærslu leiðbeiningarits BREEAM, GN22 kemur það nú skýrt fram vörur sem eru vottaðar samkvæmt viðmiðum Svansins fyrir Floor coverings 029 og Chemical building products 097 eru viðurkenndar sem sönnun fyrir samræmi við kröfur BREEAM þar sem sótt er um stig fyrir Hea 02 Indoor Air Quality fyrir minni losun skaðlegra efna frá byggingarvörum.

Samþykktin byggir á viðmiðum Svansins fyrir gólfefni og undirlag annars vegar og efnavörur hins vegar. Viðmiðin fela meðal annars í sér kröfur um losun TVOC, formaldehýðs og krabbameinsvaldandi efna í flokki 1A og 1B sem eru meðal þeirra þátta sem metnir eru samkvæmt BREEAM kröfu Hea 02.

Við fögnum þessum mikilvæga áfanga og hvetjum öll sem koma að hönnun, framkvæmd og vottun BREEAM-bygginga til að kynna sér málið og nýta sér Svansvottuð gólfefni og efnavörur sem hluta af vistvænum og heilsusamlegum byggingarlausnum.

Fleiri fréttir