28. september 2026

Orkuveita Reykjavíkur hlýtur Svansleyfi fyrir endurbætur á skrifstofuhúsnæði

Orkuveita Reykjavíkur hefur hlotið Svansleyfi fyrir umfangsmiklar endurbætur á skrifstofuhúsnæði sínu að Bæjarhálsi 1. Verkefnið er gott dæmi um hvernig hægt er að endurnýja og bæta núverandi byggingar með áherslu á sjálfbærni, umhverfisáhrif og velferð starfsfólks.

Leyfið er annað leyfið sem Orkuveitan fær afhent en fyrir ári síðan lauk fyrirtækið Svansvottun á mötuneytinu í Bæjarhálsi.

Verkefnið nær yfir tæplega 5.000m2 og er stærsta endurbótaverkefni sem hefur hlotið Svansvottun fyrir endurbætur á Íslandi í einu lagi. Verkefnið sýnir að hægt er að beita ströngum umhverfis- og gæðakröfum Svansins við umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði og skapa um leið nútímalegt og heilsusamlegt vinnuumhverfi.

Endurbæturnar ná meðal annars til Vesturhúss byggingarinnar sem hefur að mestu verið ónotað undanfarin ár. Jafnframt voru gerðar umfangsmiklar breytingar á hvolfrými byggingarinnar þar sem hringstigi var fjarlægður og tenging milli húsanna mynduð með millipöllum á nokkrum hæðum. Á þriðju og fimmtu hæð tengjast nýju pallarnir Vesturhúsi en skapa jafnframt tengingu við aðrar hæðir Austurhússins. Þessar breytingar auka samnýtingu og flæði innan byggingarinnar.

Við endurbæturnar var lögð rík áhersla á að bæta innivist og orkunýtni. Skipt var um gler í útveggjum og þaki hvolfrýmis og sett up betur einangrað gler sem stuðlar að bættri innavist hvað varðar ofhitnun rýmisins og auknum gæðum vinnuumhverfisins. Einnig voru settir upp sólarskermar úr lituðu gataplötuáli á suðurhlið hvolfrýmisins sem stýrir sólargeislum og skapar þægilegra vinnuumhverfi.

Mikil áhersla var lögð á að skapa aðlaðandi starfsumhverfi. Gróður og plöntur gegna þar mikilvægu hlutverki og eru áberandi þáttur í hönnuninni. Svansvottunin gerir auk þess strangar kröfur um meðal annars efnisval, rakavarnir, loftgæði og aðra þætti sem hafa áhrif á heilsu og vellíðan þeirra sem nýta bygginguna daglega.

Svanurinn óskar Orkuveitu Reykjavíkur innilega til hamingju með Svansleyfið.

Fleiri fréttir