Nýjar reglur um tilvísanir í skráðar byggingarvörur í Supply Chain Declaration Portal (SCDP)
Þann 1. júlí 2024 kynnti Norræni Svanurinn nýjar reglur um hvernig á að vísa í/merkja byggingarefni sem hefur verið skráð í Supply Chain Declaration Portal (SCDP). Reglurnar gilda um allar vörur skráðar í SCDP.
Hvernig á vísa í skráð byggingarefni?
Nýju reglurnar skilgreina hvar og hvernig má vísa í/merkja skráð byggingarefni.
Helstu atriðin eru eftirfarandi:
- Það er mikilvægt að rugla ekki saman skráðum vörum og vörum sem eru Svansvottaðar eða Evrópublómsvottaðar.
- Skráðar vörur eru ekki metnar samkvæmt sömu ströngu kröfunum og vottaðar vörur.
- Til þess að einfalda málin og forðast grænþvott og misskilning hefur Norræni Svanurinn þróað þrjár setningar sem hægt er að nota að vild til þess að koma því á framfæri að varan sé skráð í SCDP.
- Þessar setningar, og aðrar sambærilegar, má ekki nota í markaðssetningu, heldur aðeins sem hluta af upplýsingum fyrir vöruna.
- Einungis má nota Svansmerkið og merki Evrópublómsins ef varan er vottuð, merkin má því ekki nota í tengslum við skráðar vörur.
- Einungis þessar þrjár setningar eru leyfilegar þegar vísa á í skráðar vörur.
- Öll breyting og/eða stytting á setningunum er bönnuð.
- Bannað er að vísa í Svaninn, Svansvottun eða annað sambærilegt nema þessar setningar séu notaðar í heild sinni.
Setning #1: Upplýsingum var skilað til Svansins í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur) og má nota í verkefnum sem vinna eftir þeim viðmiðum. Varan er ekki Svansvottuð.
Setning #2: [Vöruheiti/Vara] er skráð í SCDP í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).
Setning #3: [Vöruheiti/Vara] er skráð í SCDP.
Umfang
Nýju reglurnar tóku gildi 1. júlí 2024 og eru afturvirkar fyrir öll byggingarefni sem eru nú þegar skráð í SCDP.
Fyrir 15. september 2024 þarf að laga núverandi vörutexta og markaðssetningu í samræmi við nýju reglurnar.
Undantekningar
Undantekningar gilda fyrir vörur sem eru skráðar í gegnum HPP vörugáttinna eða eru á Íslenska listanum og eru eingöngu ætlaðar til notkunar í verkefnum sem vinna eftir nýbyggingarviðmiðunum, útgáfu 3 og endurbótaviðmiðunum, útgáfu 1. Fyrir þær vörur er leyfilegt að halda tilvísunum/merkingum sem eru í samræmi við fyrri reglur um markaðssetningu eða eins og segir í „Terms and Conditions“.
Vörur sem samþykktar eru í bæði HPP og SCDP mælum við með því að nota setningu #1 úr nýju reglunum.
Misnotkun og brot á reglunum
Misnotkun eða brot á reglunum mun leiða til þess að þær vörur verða fjarlægðar úr SCDP í samræmi við „Terms and Conditions“.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi ofangreint, vinsamlegast hafðu samband við okkur á svanurinn@ust.is