Opið umsagnarferli: Viðmið Svansins fyrir ræstiefni og fituleysi fyrir iðnað
Nú gefst kostur á að gera athugasemdir við uppfærð viðmið Svansns fyrir ræstiefni og fituleysi fyrir iðnað (065). Svanurinn tekur mið af öllum lífsferlinum og setur strangar kröfur sem varða heilsu fólks og umhverfið.
Hér má finna drög af viðmiðunum og frekari upplýsingar um af hverju hver krafa er sett. Hér er svo töflureiknir (e. calculation sheet) fyrir viðmiðin.
HELSTU BREYTINGAR:
Norræna umhverfismerkisráðið er opið fyrir öllum athugasemdum sem snerta viðmiðin, en helstu breytingarnar eru þessar:
- Nýjum EUH hættuflokkum fyrir innkirtlaraskandi efni, PBT/vPvB og PMT/vPvM hefur verið bætt við bannlista fyrir bæði vörur og innihaldsefni.
- Listinn yfir efni sem eru bönnuð í vörum hefur verið uppfærður og inniheldur nú m.a. amínófjölfosfónöt, bisfenól og afleiður þess, bórsýru og bóröt, LAS, MI og MI/CMIT 3:1, örplast, NTA og sölt þess, PFAS og siloxan D4, D5, D6 og HMDS.
- Yfirborðsvirk efni flokkkuð sem H411 og H412 eru ekki lengur undanskilin kröfum um langvarandi umhverfisáhrif.
- Viðmiðunargildi fyrir CDV hafa verið hert og undanþága fyrir saltsýru fjarlægð.
- Ný krafa er sett fyrir endurvinnanleika á aðalumbúðum.
HVER GETA SENT INN UMSÖGN?
Öll geta sent inn umsögn, hvort sem það eru einstaklingar, fyrirtæki eða stofnanir sem hafa áhuga á að taka þátt í þróunarvinnu viðmiða Svansins. Athugasemdir frá hagsmunaaðilum eru mikilvægur þáttur í vinnunni við að þróa ný viðmið og okkur þætti vænt um ef upplýsingum um opna umsagnarferlið væri dreift til þeirra sem það gæti varðað.
HVERNIG Á AÐ SKILA INN UMSÖGN?
Athugasemdir skulu sendar inn hér eigi síðar en 21. mars 2025. Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við svanurinn@ust.is.
HVAÐ SVO?
Þegar umsagnartímanum er lokið verða umsagnir teknar saman, þær metnar og ný endurskoðuð tillaga af viðmiðunum lögð fyrir umhverfismerkisráð allra Norðurlandanna. Í kjölfarið mun Norræna umhverfismerkisráðið taka ákvörðun um útgáfu viðmiðanna.
Allar umsagnir sem koma fram í þessu ferli og svör Svansins við þeim verða birtar í ákvörðun Norræna umhverfismerkisráðsins sem verður aðgengileg á heimasíðu Svansins í tengslum við birtingu nýju útgáfu viðmiðanna.
Við hlökkum til að heyra þínar athugasemdir fyrir 21. mars 2025.