17. mars 2026

Svansvottuð málning og lökk nú leyfileg í BREEAM vottaðar byggingar

Svansvottuð málning og lökk hafa nú verið formlega samþykkt til notkunar í BREEAM-vottuðum byggingum. Í næstu uppfærðum viðmiðum BREEAM, GN22, verður skrifað sérstaklega inn að Svansvottuð málning sé sjálfkrafa samþykkt í BREEAM vottaðar byggingar.

Samþykktin kemur í kjölfar endurskoðunar á viðmiðum Svansins fyrir málningu. Nýjasta útgáfan, Paint and varnishes 096, útgáfa 4, felur í sér hertar kröfur um meðal annars TVOC-útgufun, formaldehýðútgufun og VOC-innihald. Þessi viðmið eru nú jafn ströng eða strangari en almennar kröfur BREEAM á þessu sviði.

Af þessu tilefni fór Svanurinn á Íslandi í markvisst ferli, í samstarfi við Eflu verkfræðistofu, þar sem viðeigandi gögn voru send til BREEAM til að fá Svansvottaða málningu viðurkennda innan kerfisins og voru gögnin samþykkt.

Við fögnum þessum mikilvæga áfanga og hvetjum öll sem koma að hönnun, framkvæmd og vottun BREEAM-bygginga til að kynna sér málið og nýta sér Svansvottaða málningu sem hluta af vistvænum og heilsusamlegum byggingarlausnum.

Fleiri fréttir