Leikskólarnir Hálsaborg og Grandaborg í Reykjavík fá Svansvottun
Reykjavíkurborg hefur nú hlotið Svansvottun fyrir endurbætur á tveimur leikskólum til viðbótar; Hálsaborg og Grandaborg. Vottunin er liður í markvissri uppbyggingu borgarinnar þar sem lögð er aukin áhersla á gæði bygginga og heilnæmt umhverfi fyrir börn en áður hafði borgin hlotið vottun fyrir endurbætur leikskólanna Fífuborgar og Litla Jörfa.
Svansvottunin staðfestir að endurbætur leikskólanna uppfylli strangar kröfur um meðal annars innivist, rakaöryggi og notkun byggingarvara sem eru bæði umhverfisvænni og öruggari fyrir heilsu notenda og þeirra sem standa að framkvæmdunum. Slíkar kröfur eru hluti af stefnu borgarinnar í nýbyggingum og endurbótum, þar sem markmiðið er að tryggja sérstaklega að hannað sé með heilsu og vellíðan að leiðarljósi.
Á undanförnum árum hefur athygli beinst í auknum mæli að áhrifum byggingarefna og innivistar á heilsu, sérstaklega þegar kemur að viðkvæmum hópum eins og börnum. Í nýlegri grein á Vísi sem skrifuð er af Guðrúnu Lilju Kirstinsdóttur, framkvæmdarstjóra Svansins, Skaðleg efni ógna heilsu barna kemur fram að skaðleg efni í umhverfinu geti haft alvarleg og jafnvel óafturkræf áhrif á heilsu barna. Þar sem bent er á að margar efnablöndur geti verið hormónaraskandi, valdið ofnæmi, fæðingargöllum og jafnvel verið krabbameinsvaldandi.
Sérstaklega er undirstrikað að börn séu viðkvæmari fyrir efnaáreiti úr umhverfinu heldur en fullorðnir, meðal annars vegna smæðar sinnar og þar sem þau rannsaka umhverfi sitt með öllum skilningarvitunum. Í þessu samhengi er því lykilatriði að velja byggingarefni og vörur sem uppfylla strangar kröfur um efnainnihald.
Vottun leikskólanna Hálsaborgar og Grandaborgar er skref í átt að sjálfbærari og heilsusamlegri byggingum í Reykjavík og endurspeglar aukna vitund um mikilvægi þess að huga að umhverfi barna frá fyrstu upphafi.
S
Fleiri fréttir
4. maí 2026
Leikskólarnir Hálsaborg og Grandaborg í Reykjavík fá Svansvottun
22. apríl 2026
Fræðslufundur um FSC/PEFC kröfur Svansins fyrir timbur og bambus
17. mars 2026
Svansvottuð málning og lökk nú leyfileg í BREEAM vottaðar byggingar
6. mars 2026
