MótX fær Svansleyfi fyrir Hringhamar 17 og 19
MótX hefur hlotið Svansleyfi fyrir fjölbýlishúsin að Hringhamri 17 og 19 í Hafnarfirði. Um er að ræða samtals 43 íbúðir sem bætast við ört stækkandi framboð Svansvottaðs húsnæðis á Íslandi.
Áður hafði MótX fengið Svansleyfi fyrir Hringhamar 9, 11, 13 og 15 sem tilheyra sama íbúðarkjarna og eru þetta því samtals 118 Svansvottaðar íbúðir. Þar að auki er Hringhamar 27-29 í vottunarferli hjá fyrirtækinu.
Með þessu áfanga styrkist staða Hafnarfjarðar enn frekar þegar kemur að umhverfisvottuðu íbúðarhúsnæði. Í dag eru alls 444 íbúðir í sveitarfélaginu Svansvottaðar af um 1.050 íbúðum á landsvísu, eða um 42% allra vottaðra íbúðareininga á Íslandi.
Árangurinn má meðal annars rekja til þeirrar stefnu Hafnarfjarðarbæjar að veita ívilnanir á lóðarverði fyrir umhverfisvottaðar byggingar. Sú ákvörðun hefur reynst mikilvægur hvati fyrir uppbyggingu sjálfbærara húsnæðis og sýnir vel hversu mikil áhrif fjárhagslegir hvatar sveitarfélaga geta haft þegar kemur að aukinni umhverfisvottun mannvirkja. Ívilnanir vega að hluta upp þann kostnað sem fylgir vottunarferlinu og skapa þannig betri forsendur fyrir metnaðarfull verkefni.
MótX hefur staðið sig afar vel í þróun umhverfisvænna og heilsusamlegra híbýla og hefur fyrirtækið sýnt mikinn metnað í vottuninni. Sérstaklega hefur verið lögð áhersla á að framkvæma verkefnið af fagmennsku og með sjálfbærni að leiðarljósi.
Svansvottaðar byggingar uppfylla strangar kröfur um meðal annars efnisval, loftgæði, orkunýtni og aðrar vistvænar lausnir, sem stuðla að betri lífsgæðum íbúa og minni umhverfisáhrifum bygginga til framtíðar
4. maí 2026
22. apríl 2026
8. apríl 2026
17. mars 2026
