29. maí 2026

Svanurinn fagnar nýjum kröfum um ljósvist í byggingarreglugerð

Svanurinn fagnar þeim mikilvæga áfanga að nýr kafli um ljósvist hefur nú verið innleiddur í byggingarreglugerð og að í dag voru kynntar nýjar leiðbeiningar um ljósvist sem gefnar eru út af Húsnæðis, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Með breytingunum eru í fyrsta sinn settar fram skýrar og mælanlegar kröfur um dagsbirtu, raflýsingu, útsýni og varnir gegn ljósmengun í mannvirkjum. Markmiðið er að stuðla að heilnæmara byggðu umhverfi og bættri innivist fyrir fólk.

Meðal nýrra krafna eru:

Að í vistarverum sé fullnægjandi dagsljós

Að samanlagt ljósop glugga sé að lágmarki 10% af gólffleti rýmis

Að dagsbirta nái að lágmarki 300 lux fyrir helming dagsbirtutíma í að minnsta kosti 40% af viðeigandi gólffleti.

Að komið sé í veg fyrir ljósmengun með markvissari hönnun útilýsingar

Að staðsetning glugga og útfærsla þeirra tryggi fullnægjandi útsýni úr vistarverum.

Svanurinn hefur lengi lagt áherslu á mikilvægi dagsbirtu og góðrar innivistar í byggingum. Í Svansvottuðum bygginum þarf að skila inn dagsbirtuútreikningum fyrir rými þar sem íbúar eða notendur dvelja í lengri tíma.

Kröfur Svansins eru þó ekki að öllu leyti þær sömu og þær sem nú eru innleiddar í byggingarreglugerð. Þar gera nýju reglurnar ráð fyrir að dagsbirta nái 300 lux í 40% af rýninu í öllum byggingartegundum á meðan Svanurinn hefur gert kröfu um 150 lux í 50 af rýminu í íbúðarhúsnæði en 300 lux í 50% af rýminu í öðrum byggingum. Þá er einnig heimilt að sýna fram á niðurstöður útreikninga með daylight factor-útreikningum hjá Svaninum sem er ekki gert ráð fyrir í byggingarreglugerð.

Svanurinn er norrænt umhverfismerki sem byggir á sameiginlegum kröfum á Norðurlöndum. Kröfurnar eru aðlagaðar að hverju landi fyrir sig eftir því sem við á og má því segja að um sér að ræða íslenskt vottunarkerfi. En í nýjustu útgáfum byggingarviðmiða Svansins voru kröfurnar aðlagaðar að íslenskum aðstæðum.

Kröfur Svansins eru endurskoðaðar og þróaðar áfram að jafnaði á um fimm ára fresti til að endurspegla nýjustu þekkingu, tækniþróun og breytingar á reglugerðum og markaði. Þess vegna fögnum við því sérstaklega að nú sé komið tilefni til að endurskoða dagsbirtukröfur Svansins í takt við þær breytingar sem verið er að innleiða í íslenska byggingarreglugerð.

Við óskum íslensku samfélagi og öllum þeim fjölmörgu sérfæðingum sem komu að þróun þessara nýju krafna innilega til hamingju með þannan merka áfanga. Þetta er mikilvægt skref í átt að betri, heilnæmari og sjálfbærari byggingum þar sem líðan fólks er höfð að leiðarljósi.

Fleiri fréttir