Hróarskelda – fyrsta Svansvottaða tónlistarhátíðin
Mynd af Hróarskeldu, ljósmyndari: Christian Solgaard.
Þegar Hróarskelduhátíðin byrjar núna í vikunni, verður hún fyrsta tónlistarhátíðin sem hefur uppfyllt allar kröfur Svansins í nýjum viðmiðum fyrir viðburði. Hátíðin er því Svansvottuð í ár, og uppfyllir þar með kröfur um orkunotkun, líffræðilegan fjölbreytileika, mat og drykk, auðlindanýtingu, úrgangsstjórnun, hreinsiefni, markaðssetningu og samskipti.
Hróarskelda er að jafnaði stærsta tónlistarhátíð sem haldin er á Norðurlöndunum ár hvert og því frábær árangur að uppfylla kröfur Svanins fyrir svo stóran viðburð. Að sögn sjálfbærnistjóra hátíðarinnar er vottunin mikilvægt skref í því að gera umhverfis- og loftslagsstarf hátíðarinnar kerfisbundnara og bindandi, bæði í innra skipulagi og í samstarfi við þá fjölmörgu birgja og samstarfsaðila sem að hátíðinni koma.
„Við höfum sérstaklega valið Svansmerkið því það veitir okkur strangan ramma til að þróa hátíðina í umhverfisvænni átt. Á hverju ári safnast saman um 130.000 hátíðargestir saman og vinnum við því með fjölda birgja og samstarfsaðila. Þess vegna þurfum við viðmið sem eru skýr, skjalfest og auðvelt að fylgja.
Við vonum einnig að reynsla okkar geti hjálpað til við að ýta undir þróun í greininni. Ef fleiri hátíðir og viðburðir nota viðmiðin sem raunverulegt verkfæri gæti orðið auðveldara að vinna kerfisbundið að því að draga úr álagi á umhverfið og loftslagið,“ segir Sanne Stephansen, sjálfbærnistjóri Hróarskelduhátíðarinnar.
Frederik Gudi Sommer-Gleerup, sérfræðingur hjá Svaninum í Danmörku fagnar áfanganum og er ánægður með að svo þekktur og rótgróinn viðburður hafi hlotið Svansvottun:
„Þetta sendir ótrúlega falleg og sterkt skilaboð til greinarinnar og hátíðargesta um að Hróarskelduhátíðin sé leiðandi og sýni fram á að jafnvel mjög stórir viðburðir geti unnið markvisst að því að draga úr umhverfis- og loftslagsáhrifum. Svansvottunin er sönnun þess að Hróarskelduhátíðin standi við orð sín og ég vona að fleiri hátíðir og aðrir viðburðir fylgi í kjölfarið.“
Viðmið fyrir viðburði má finna hér. Fjölbreyttir viðburðir geta sótt um vottun, hvort sem þeir eru innanhúss eða utanhúss, listahátíðir, ráðstefnur, málstofur, sýningar eða íþróttaviðburðir. Við hvetjum alla viðburðarhaldara að kynna sér viðmiðin og sækja um.
24. júní 2026
29. maí 2026
4. maí 2026
22. apríl 2026
