Ný handbók Grænni byggðar um endurnotkun byggingarvara
Grænni byggð hefur gefið út nýja handbók um endurnotkun byggingarvara sem ætlað er að auðvelda hönnuðum, verktökum, eigendum fasteigna og öðrum hagaðilum að innleiða endurnotkun í byggingarverkefnum. Einnig hefur verið gerð heimasíða með samantekt úr handbókinni. Handbókin er mikilvægt framlag til aukinnar hringrásarhugsunar í mannvirkjagerð og styður við markmið um að draga úr umhverfisáhrifum byggingariðnaðarins.
Byggingariðnaðurinn er einn stærsti notandi hráefna og auðlinda í samfélaginu. Með því að legja líftíma byggingarvara og halda verðmætum efnum í umferð eins lengi og mögulegt er má draga verulega úr auðlindanotkun, úrgangsmyndun og losun gróðurhúsalofttegunda. Endurnotkun byggingarvara er því lykilþáttur í þróun hringrásarhagkerfis þar sem verðmæti efna og vara er varðveitt í stað þess að þau verði að úrgangi.
Handbókin tekur saman helstu atriði sem þarf að hafa í huga við endurnotkun byggingarvara, meðal annars:
- Hvernig greina má byggingarvörur sem henta til endurnotkunar
- Mat á ástandi og gæðum vara
- Skráningu og rekjanleika
- Kröfur um öryggi og frammistöðu
- Skipulagningu niðurrifs með endurnotkun að leiðarljósi
- Hvernig innleiða má endurnotkun í hönnunar- og framkvæmdarferli byggingarverkefna
Handbókin leggur jafnframt áherslu á að endurnotkun sé ekki aðeins umhverfisvæn lausn heldur einnig leið til að varðveita verðmæti sem þegar hafa verið sköpuð. Með markvissri endurnotkun má draga úr þörf fyrir framleiðslu nýrra byggingarefna og þar með minnka álag á náttúruauðlindir.
Endurnotkun byggingarvara og Svansvottun
Þessi nálgun er í góðu samræmmi við áherslur Svansins á hringrásarhagkerfið þar sem markvisst er unnið að því að skapa lokaðar efnahringrásir og minnka notkun nýrra hráefna (e. raw material). Í nýbyggingarviðmiðum Svansins er sérstaklega hvatt til aðgerða sem stuðla að aukinni auðlindanýtingu og hringrásarhagkerfi. Verkefni geta fengið stig samkvæmt kröfu P15 sem er valkrafa fyrir notkun endurnotaðra byggingarvara. Með slíkum aðgerðum er stuðlað að minni auðlindanotkun, minni úrgangsmyndun og minni loftslagsáhrifum bygginga.
Ný handbók Grænni byggðar er því gagnlegt verkfæri fyrir öll sem vilja auka endurnotkun byggingarvara í framkvæmd og stuðla að sjálfbærari mannvirkjagerð til framtíðar.
Fleiri fréttir
26. júní 2026
Ný handbók Grænni byggðar um endurnotkun byggingarvara
24. júní 2026
Hróarskelda – fyrsta Svansvottaða tónlistarhátíðin
16. júní 2026
Fífuborg hlýtur Svansvottun fyrir endurbætur – fyrsta Svansleyfi Reykjavíkurborgar fyrir leikskóla
29. maí 2026
