Stórt skref hjá Málningu hf.
Fulltrúar Málningar Hf., Einar Lúthersson og Húni Sighvatsson taka við endurnýjuðu Svansleyfi af fulltrúum Svansins, Birgittu Stefánsdóttur og Ester Öldu H. Bragadóttur.
Málning hf. hefur lokið við endurvottun Svansins fyrir innanhússmálningu sem fyrirtækið framleiðir. Vottunin staðfestir að vörurnar uppfylla nú strangari kröfur Svansins um umhverfi, heilsu og gæði.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá íslenskt framleiðslufyrirtæki halda áfram markvissri vinnu við Svansvottun með að klára þetta stóra verkefni sem endurvottun er. Málning hf. sýnir með þessu mikilvægt fordæmi um að íslensk framleiðsla getur keppt við erlend stórfyrirtæki þegar kemur að því að mæta ströngum umhverfis- og gæðakröfum. Við erum ótrúlega ánægð með að sjá íslensk fyrirtæki sem bjóða upp á eigin vottaðar vörur fyrir almenning og fagmenn“ segir Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi.
Málning hf. hlaut fyrst Svansleyfi árið 2018, þegar fyrirtækið varð eitt af fyrstu íslensku framleiðslufyrirtækjunum til að fá vottun Svansins. Leyfið náði þá til fjölda tegunda innanhússmálningar sem seldar eru undir vörumerkjum Málningar og Slippfélagsins. Með endurvottuninni sýnir fyrirtækið fram á áframhaldandi markvissa vinnu við að draga úr umhverfisáhrifum framleiðslunnar og bjóða neytendum og fagfólki umhverfisvottaðan valkost.
Fulltrúar Slippfélagsins ánægð með afrekið, enda fellur öll innanhúsmálning Slippfélagsins undir vottunina.
Harðar kröfur enda málning allt í kring
Þegar málning er Svansvottuð er lögð sérstök áhersla á efnainnihald vörunnar. Markmiðið er að takmarka notkun skaðlegra efna og tryggja að varan uppfylli strangar kröfur um losun efna sem geta haft áhrif á inniloft. Það skiptir miklu máli þar sem málning er notuð innandyra, á heimilum, vinnustöðum, skólum og öðrum rýmum þar sem fólk dvelur daglega. Svansvottun felur ekki aðeins í sér kröfur til lokaafurðarinnar heldur einnig til framleiðsluferlisins, hráefna, gæða og upplýsinga til notenda.
Með vottuninni hefur óháður þriðji aðili m.a. staðfest að varan innihaldi ekki krabbameinsvaldandi, hormónaraskandi eða ofnæmisvaldandi efni, og að losun formaldehýðs og rokgjarna lífrænna efna sé eins lág og mögulegt er. Rotvarnarefni hafa einnig verið takmörkuð vegna mögulegra skaðlegra áhrifa, þungmálmar eru bannaðir og svo mætti lengi telja. Að auki eru settar gæðakröfur á endingu, hversu vel málningin þekur yfirborð (efnisþekja) og að notendur séu upplýstir um rétta notkun málningarinnar og förgun afganga og umbúða.
Kröfurnar sem vörur Málningar hafa staðist eru fjölmargar og óskar Svanurinn Málningu hf. innilega til hamingju með endurvottunina og þakkar fyrirtækinu fyrir gott samstarf sem einkenndist af þolinmæði og þrautseigju.
Afrekinu var að vonum fagnað með góðum kræsingum.
7. júlí 2026
26. júní 2026
24. júní 2026
16. júní 2026
