Tryggvagata 12A hlýtur Svansvottun og markar áfanga í vistvænni uppbyggingu JÁVERKs
Tryggvagata 12A hefur hlotið Svansvottun og er þar með fyrsta byggingin í verkefninu Tryggvagötu 10-12 til að fá vottun. Verkefnið samanstendur af 78 íbúðum og er vottunin mikilvægur áfangi í að byggja upp sjálfbærara og umhverfisvænna húsnæði á Selfossi.
Með þessari vottun hefur JÁVERK nú hlotið Svansvottun fyrir samtals fimm verkefni og skipar sér meðal fremstu fyrirtækja landsins á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar.
Svansvottun gerir strangar kröfur til bygginga á öllum stigum lífsferils þeirra, allt frá efnisvali og framkvæmdartíma til orkunýtni, innivistar og umhverfisáhrifa. Vottunin staðfestir að byggingin uppfylli metnaðarfullar kröfur um sjálfbærni og gæði.
Um 30% lægra kolefnisspor en viðmiðunargildi HMS
Samkvæmt lífsferilsgreiningu verkefnisins er kolefnisspor Tryggvagötu um 30% lægra en viðmiðunargildi fyrir íbúðarhúsnæði sem Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hefur gefið út. HMS bendir jafnframt á að framleiðsla byggingarefna sé stærsti losunarþáttur bygginga yfir líftíma þeirra og vegi um 46% af heildarkolefnissporinu.
Lækkun kolefnisspors verkefnisins má meðal annars rekja til markvissra ákvarðana um efnisval og hönnun. JÁVERK hefur lagt áherslu á að draga úr magni steypu í nánu samstarfi við hönnuði, auk þess að nota eftir fremsta megni steypu með lægra innihaldi sementsgjalls (e. clinkers).
Í verkefninu var slík steypa notuð í yfir 90% af allri steypu sem fór í bygginguna.
Stærstur hluti kolefnisspors steypu tengist framleiðslu sements, sem er einn kolefnisfrekasti þáttur framleiðslunnar. Á undanförnum árum hafa íslenskir steypuframleiðendur þróað nýjar steypublöndur sem innihalda minna magn sementsgjalls og nota í staðin önnur bindiefni en með því er hægt að ná fram verulegri minnkun kolefnisspors steypunnar án þess að skerða þá eiginleika sem gera steypu að hentugu byggingarefni fyrir íslenskar aðstæður.
Lífsferilsgreining verkefnisins var unnin í samræmi við kröfur HMS, en við útreikningana var lögð sérstök áhersla á að byggja á raunverulegum gögnum um framkvæmdina. Í samstarfi við útskriftarnema í tæknifræði árið 2025 voru fasar A4 (flutningar byggingarefna á verkstað) og A5 (byggingar- og uppsetningarferli) reiknaðir sérstaklega fyrir verkefnið í stað þess að notast við staðlaðar meðaltalsforsendur, eins og algengt er í lífsferilsgreiningum. Sú nálgun veitir nákvæmari mynd af raunverulegum umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar og styrkir þær niðurstöður sem greiningin skilar.
„Árangur sem þessi byggir á góðu samstarfi Árborgar, ráðgjafa, undirverktaka og starfsfólks JÁVERK. Við þökkum öllum sem komu að verkefninu fyrir þeirra framlag. Það er gaman að sjá svona flott verkefni verða að raunveruleika og að þessar aðgerðir skila raunverulegum árangri“ segir Sigrún Melax gæðastjóri JÁVERK.
Vottun Tryggvagötu 12A er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu verkefnisins og undirstrikar metnað JÁVERK til að stuðla að vistvænni framtíð í íslenskum byggingariðnaði.
Fleiri fréttir
16. október 2026
Tryggvagata 12A hlýtur Svansvottun og markar áfanga í vistvænni uppbyggingu JÁVERKs
6. október 2026
Smáragarður hlýtur Svansvottun fyrir endurbætur á skrifstofum BYKO
28. september 2026
Orkuveita Reykjavíkur hlýtur Svansleyfi fyrir endurbætur á skrifstofuhúsnæði
20. ágúst 2026
