Undanfarnar vikur hefur mikil umræða skapast um raka og mögulegar mygluskemmdir í íslenskum byggingum. Slík mál minna okkur á hversu mikilvægt það er að huga að rakavörnum frá fyrstu stigum hönnunar og framkvæmda. Þegar raki kemst inn í byggingar eða byggingarefni án þess að brugðist sé við tímanlega getur það haft veruleg áhrif á bæði bygginguna sjálfa og heilsu þeirra sem þar dvelja.
Raki og mygla í mannvirkjum hafa í gegnum tíðina valdið miklu tjóni, bæði fjárhagslegu og heilsufarslegu. Kostnaður vegna viðgerða, framkvæmda, rekstrartruflana og mögulegra heilsufarsáhrifa getur orðið umtalsverður. Þess vegna eru markvissar rakaforvarnir eitt mikilvægasta gæðamál byggingariðnaðarins.
Í Svansvottuðum byggingum og endurbótaverkefnum eru gerðar strangar kröfur um rakavarnir á hönnunar- og framkvæmdartíma. Markmiðið er að draga úr líkum á rakaskemmdum og tryggja heilnæmt og öruggt inniloft fyrir notendur byggingarinnar.
Kröfurnar kveða meðal annars á um að skipaður sé rakavarnafulltrúi með viðeigandi menntun og reynslu. Sá aðili ber ábyrgð á gerð rakavarnaáætlunar og hefur eftirlit með því að henni sé fylgt á framkvæmdartíma.
Í rakavarnaáætlun þarf meðal annars að koma fram:
Val á efnum og tæknilausnum sem hafa áhrif á raka og rakavarnir
Hvernig byggingarefni eru varin gegn raka á byggingarstað.
Áætlaður útþornunartími mismunandi byggingarhluta.
Aðferðir til að tryggja nægilega þornun byggingarefna.
Hámarks leyfilegt rakastig byggingarefna áður en fletir eru lokaðir af.
Eigendur og notendur Svansvottaðra bygginga geta því treyst því að sérstök áhersla hafi verið lögð á að lágmarka hættu á rakaskemmdum vegna framkvæmdarinnar.
Öflugar rakavarnir eru ekki aðeins mikilvægar fyrir heilsu fólks heldur einnig fyrir hagkvæman rekstur og langtímaverðmæti fasteigna. Reynslan sýnir að mun ódýrara er að koma í veg fyrir rakavandamál en að bregðast við þeim eftir á.
Umræðan sem nú á sér stað undirstrikar mikilvægi þess að læra af fyrri reynslu og leggja aukna áherslu á forvarnir. Með skýrum kröfum, faglegu eftirliti og marvissri rakastýringu er hægt að draga verulega úr líkum á kostnaðarsömum rakaskemmdum síðar meir.
Nánari upplýsingar um kröfur Svansins fyrir nýbyggingar og endurbætur má finna inni á svanurinn.is/byggingar
20. nóvember 2026
5. nóvember 2026
30. október 2026
28. október 2026
