1. apríl 2026

Arnarhvoll verktakar hljóta Svansleyfi fyrir Vetrarmýri 2-4

Arnarhvoll vektakar hafa hlotið Svansleyfi fyrir íbúðarbyggiðina Vetrarmýri 2-4 í Garðabæ. Verkefnið samanstendur af tveimur fjögurra hæða fjölbýlishúsum með alls 72 íbúðum og bætir enn frekar við framboð Svansvottaðs húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Byggingarnar eru hannaðar í randbyggðarformi umhverfis skjólgóðan inngarð og bjóða upp á fjölbreytt úrval íbúða af mismunandi stærðum sem mæta ólíkum þörfum íbúa. Verkefnið er hluti af uppbyggingu nýs og vandaðs íbúðarhverfis í Vetrarmýri í Garðabæ.

Svansvottun er opinber norræn umhverfisvottun sem gerir strangar kröfur til bygginga á öllum stigum framkvæmdarinnar. Vottunin tekur meðan annars til rakavarna, flokkunar og meðhöndlunar úrgangs á byggingartíma, efnisvals, orkunýtingar og gæða innivistar. Meðal annars eru gerðar kröfur um betri nýtingu dagsbirtu og að byggingarnar stuðli að heilnæmu og vistvænu umhverfi fyrir íbúa.

Framkvæmd verksins gekk vel og lögð var rík áhersla á að fylgja kröfum Svansins eftir af nákvæmni á öllum stigum byggingarferlisins. Með markvissri stjórnun og góðu samstarfi allra aðila tókst að tryggja að verkefnið uppfyllti þær kröfur sem gerðar eru til Svansvottaðra bygginga.

„Það er ánægjulegt að sjá Vetrarmýri 2-4 bætast í hóp Svansvottaðra íbúðarbygginga. Verkefnið sýnir hvernig hægt er að sameina vandaðar byggingarlausnir, umhverfissjónarmið og aukin lífsgæði íbúa í einu og sama verkefninu“ segir Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdarstjóri Svansins.

Með Svansleyfinu staðfesta Arnarhvoll verktakar enn á ný netnað sinn í átt að sjálfbærari mannvirkjagerð og auknum gæðum í nýbyggingum. Íbúðirnar í Vetrarmýri 2-4 eru mikilvægt framlag til framboðs á vistvænu og vottuðu húsnæði í Garðabæ og á höfuðborgarsvæðinu.

Nánari upplýsingar um sölu íbúðanna má finna hér. 

Fleiri fréttir