16. júní 2026

Fífuborg hlýtur Svansvottun fyrir endurbætur – fyrsta Svansleyfi Reykjavíkurborgar fyrir leikskóla

Leikskólinn Fífuborg hefur formlega hlotið Svansvottun fyrir endurbætur á húsnæði sínu og markar það tímamót í íslensku leikskólastarfi. Fífuborg var fyrsti leikskólinn á Íslandi til að fá Svansvottun fyrir endurbætur og jafnframt fyrsta Svansleyfi Reykjavíkurborgar á þessu sviði. Leyfið var gefið út árið 2024 en afhent við hátíðlega athöfn þann 16.júní þar sem börn, foreldrar og starfsfólk komu saman m.a til að fagna þessum mikilvæga áfanga.

Í Fífuborg er unnið samkvæmt þeirri stefnu að leikurinn sé helsta kennslutæki skólans. „Leikurinn er kennslutæki okkar í Fífuborg og á honum grundvallast allt starf skólans.“ Starfið byggir á þeirri sýn að börn læri best í gegnum leik og því eru skapaðar fjölbreyttar aðstæður sem styðja við sjálfstæði, sköpun og uppgvötun, bæði inni og úti. Megináherslur í starfi leikskólans eru vinátta, umhverfismennt, læsi og lýðræði.

Við athöfnina afhenti Bergþóra Góa Kvaran, sérfræðingur hjá Svaninum á Íslandi, leikskólastjóranum Helgu Arnfjörð Sigurðardóttur leyfið.

Svansvottunin staðfestir að endurbæturnar uppfylli strangar kröfur um umhverfisáhrif, efnisval og innivist. Með vottuninni er tryggt að börn og starfsfólk njóti heilnæms og öruggs umhverfis þar sem dregið er úr skaðlegum efnum og lögð áhersla á góð loftgæði og vellíðan.

Verkefnið er jafnframt í takt við stefnu Reykjavíkurborgar um að bæta innivist í leikskólum borgarinnar og skapa heilbrigðara og sjálfbærara umhverfi fyrir börn. Með markvissum endurbótum og vottun samkvæmt kröfum Svansins er stigið mikilvægt skref í þá átt.

„Bæði börn og foreldrar geta verið stolt af þessum árangri. Með Svansvottuninni er staðfest að leikskólinn uppfylli strangar kröfur um heilnæma innivist, sem er sérstaklega mikilvægt fyrir yngstu kynslóðina sem ver stórum hluta dags síns í leikskólanum“ segir Bergþóra.

Svansvottun Fífuborgar er mikilvægt fordæmi fyrir framtíðaruppbyggingu og endurbætur leikskóla á Íslandi og sýnir hvernig sameina má metnaðarfulla umhverfisstefnu, heilnæma innivist og gæði í umhverfi barna.

Fleiri fréttir