22. apríl 2026

Fræðslufundur um FSC/PEFC kröfur Svansins fyrir timbur og bambus

Á dögunum var haldinn fræðslufundur um kröfur Svansins sem snúa að FSC og PEFC vottunum á timbri og bambus í Svansvottuðum nýbyggingum og endurbótum. Fundurinn var vel sóttur af fjölbreyttum hópi þáttakenda sem koma að Svansvottuðum byggingum, meðal annars ráðgjöfum, leyfishöfum, verktökum og söluaðilum.

Á fundinum var farið yfir kröfur Svansins um vottað hráefni, helstu skilgreiningar á sjálfbærni- og rekjanleikavottunum FSC og PEFC, sem og hvaða gögn þurfi að skila inn til að sýna fram á að kröfurnar séu uppfylltar. Þá gafst einnig góður tími til spurninga og umræðna.

Kröfurnar hafa reynst mörgum flóknar, enda fela þær í sér samvinnu milli umsækjanda og söluaðila þar sem meðal annars þarf að sýna fram á hvernig yfirlýsing (e. claim) er á bakvið vottunina og hvort hlutfallið af vottuðu hráefni sé a.m.k 70%. Með fundinum skapaðist mikilvægt tækifæri til að auka sameiginlegan skilning, skýra ferlið og miðla gagnlegum upplýsingum til þeirra sem koma að verkefnum. Slík þekking skiptir miklu máli fyrir góð og vönduð vinnubrögð og áframhaldandi framgang sjálfbærra bygginga á Íslandi.

Fundurinn var haldinn á netinu og tekinn upp en hér má sjá upptöku af fundinum.

Fleiri fréttir