fbpx
24. janúar 2024

Lárus M.K. Ólafsson nýr formaður Umhverfismerkisráðs

Nýverið tók Lárus M.K. Ólafsson við sem formaður Umhverfismerkisráðs.

Lárus hefur starfað sem sérfræðingur á sviði umhverfis- og orkumála hjá Samtökum iðnaðarins frá árinu 2019. Þar hefur hann haldið utan um breiðan málaflokk á þessu sviði, þ.m.t. setið í stjórn Umhverfismerkisráðs þann tíma. Á vettvangi SI hefur Lárus því víðtæka reynslu af vinnu í umhverfis- og orkumálum; samskiptum við hagsmunaaðila og stjórnvöld ásamt þáttöku í erlendu samstarfi í málaflokknum.

Þessu til viðbótar hefur Lárus einnig tekið þátt í samstarfi og verkefnum sem hafa ríka skörun við starfsemi Svansins, s.s. setið í verkefnastjórn Byggjum grænni framtíð sem tekur m.a. á vistvænni mannvirkjagerð.

Svanurinn óskar Lárusi til hamingju með stöðuna og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

 

Umhverfismerkisráð er samstarfshópur fulltrúa helstu hagsmunaaðila um umhverfismerki og er Umhverfisstofnun til ráðgjafar um stefnumótun Svansins. Í umhverfissmerkisráði eiga sæti fulltrúar frá Umhverfisstofnun, Neytendasamtökunum, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Samtökum iðnaðarins, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum ferðaþjónustu, Staðlaráði Íslands og frá landsbundnum félagasamtökum sem vinna að umhverfisvernd. Hlutverk fulltrúa í umhverfismerkisráði er að halda á lofti hagsmunum viðkomandi samtaka eða stofnunar og að upplýsa um breytingar og þróun málefna sem þessi reglugerð tekur á. Einnig skulu fulltrúarnir leitast við að auka þekkingu og áhuga á umhverfismerkjum innan sinna samtaka eða stofnunar.

Fleiri fréttir