fbpx
6. febrúar 2023

Morgunfundur Svansins: Fortíðin er búin – framtíðin er snúin

Morgunfundur Svansins í Hörpu og í beinu streymi þann 15. febrúar kl.9 – 11 undir yfirskriftinni „Fortíðin er búin, framtíðin er snúin: Hvaða ákvarðanir leiddu okkur hingað og hvernig mótum við morgundaginn?“

 

Viðburðurinn verður haldinn í Björtuloftum í Hörpu og í beinu streymi þann 15. Febrúar kl. 9 – 11.

Hvernig sjáum við umhverfismál framtíðarinnar fyrir okkur? Verður grænþvottur úr sögunni? Hvernig tengjast rakaforvarnir umhverfisáhrifum byggingargeirans? Hvernig hefur umhverfisvottun áhrif á nýsköpun? Eru dæmi um spurningar sem svarað verður í hinum ýmsu erindum á fundinum.

Dagskráin er eftirfarandi:

Ávarp ráðherra – Guðlaugur Þór Þórðarson

Neytendur kæra sig ekki um Grænþvott – Elva Rakel Jónsdóttir

Hugvekja um fortíð og framtíð – Andri Snær Magnason rithöfundur

Svansvottað ráðstefnurými – Harpa

Sjálfbært Ísland – Eggert Benedikt Guðmundsson leiðtogi sjálfbærrar þróunar hjá Forsætisráðuneytinu

 

— Kaffihlé —

 

Er rakavarnareftirlit vopn í baráttu við myglu? – Alma Dagbjört Ívarsdóttir fagstjóri Bættar byggingar hjá Mannvit

Umhverfisvænni steypa – Hornsteinn/BM Vallá

Svansvottuð græn nýsköpun – Gefn

Hugvekja – Tinna Hallgrímsdóttir formaður Ungra umhverfissina

 

Fundarstjóri er Katrín Oddsdóttir

Hér má finna viðburðinn á facebook.

Fleiri fréttir