fbpx
9. júlí 2024

Nýjar reglur um tilvísanir í samþykktar byggingarvörur í Supply Chain Declaration Portal (SCDP)

Þann 1. júlí 2024 kynnti Norræni Svanurinn  nýjar reglur um hvernig á að vísa í/merkja byggingarefni sem hefur verið samþykkt í gegnum Supply Chain Declaration Portal (SCDP). Reglurnar gilda um samþykktar vörur sem notaðar eru fyrir verkefni sem vinna eftir útgáfum 3 og 4 nýbyggingarviðmiðanna og útgáfum 1 og 2 endurbótaviðmiðanna.    

 

Hvernig á vísa í samþykkt byggingarefni? 

Nýju reglurnar skilgreina hvar og hvernig má vísa í/merkja samþykkt byggingarefni. 

Helstu atriðin eru eftirfarandi: 

  • Það er mikilvægt að rugla ekki saman samþykktum vörum og vörum sem eru Svansvottaðar eða Evrópublómsvottaðar.  
    • Samþykktar vörur eru ekki metnar samkvæmt sömu ströngu kröfunum og vottaðar vörur.  
  • Til þess að einfalda málin og forðast grænþvott og misskilning hefur Norræni Svanurinn þróað tvær setningar sem hægt er að nota að vild til þess að koma því á framfæri að varan sé samþykkt í SCDP.
    • Þessar setningar, og aðrar sambærilegar, má ekki nota í markaðssetningu, heldur aðeins sem hluta af upplýsingum fyrir vöruna. 
    • Einungis má nota Svansmerkið og merki Evrópublómsins ef varan er vottuð, merkin má því ekki nota í tengslum við samþykktar vörur. 
  • Einungis þessar tvær setningar eru leyfilegar þegar vísa á í/fjallað er um samþykktar vörur. 
    • Öll breyting og/eða stytting á setningunum er bönnuð. 
    • Bannað er að vísa í Svaninn, Svansvottun eða annað sambærilegt nema þessar setningar séu notaðar í heild sinni. 

Setning #1: Upplýsingum um vöru var skilað inn til Svansins í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur) og er hún samþykkt til notkunar í verkefnum sem vinna eftir þeim viðmiðum. Varan er ekki Svansvottuð.

Setning #2: [Vöruheiti/Varan] er samþykkt vara í SCDP í samræmi við gildandi byggingarviðmið (nýbyggingar og endurbætur).

Umfang

Nýju reglurnar tóku gildi 1. júlí 2024  og eru afturvirkar fyrir öll byggingarefni sem eru nú þegar samþykkt í gegnum SCDP. 

Fyrir 15. september 2024 þarf að laga núverandi vörutexta og markaðssetningu í samræmi við nýju reglurnar. 

 

Undantekningar 

Undantekningar gilda fyrir vörur sem eru samþykktar í gegnum HPP vörugáttinna og eru eingöngu ætlaðar til notkunar í verkefnum sem vinna eftir nýbyggingarviðmiðunum, útgáfu 3 og endurbótaviðmiðunum, útgáfu 1. Fyrir þær vörur er leyfilegt að halda tilvísunum/merkingum sem eru í samræmi við fyrri reglur um markaðssetningu eða eins og segir í „Terms and Conditions“. 

Aðrar vörur sem samþykktar eru í bæði HPP og SCDP mælum við með því að nota setningu #1 úr nýju reglunum.

 

Misnotkun og brot á reglunum 

Misnotkun eða brot á reglunum mun leiða til þess að þær vörur verða fjarlægðar úr SCDP í samræmi við „Terms and Conditions“. 

 

Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi ofangreint, vinsamlegast hafðu samband við okkur á svanurinn@ust.is 

Fleiri fréttir