fbpx
29. júní 2022

Opið umsagnarferli: Viðmið Svansins fyrir eldsneyti

Nú gefst kostur á að gera athugasemdir við tillögu Svansins að uppfærðum viðmiðum fyrir fljótandi og loftkennt eldsneyti. Eitt af því sem einkennir Svaninn er að viðmiðin okkar eru endurskoðuð reglulega til að við séum ávallt að taka tillit til þróunar á markaðnum og uppfærðri þekkingu í umhverfismálum. Með það að leiðarljósi er nú búið að setja fram breytingartillögur á viðmiðum fyrir eldsneyti.

Svanurinn tekur mið af öllum lífsferlinum og setur fram strangar kröfur sem varða heilsu fólks og umhverfið. Athugasemdir viðeigandi aðila eru því mikilvægar og verða teknar til skoðunar af umhverfismerkjanefnd og Norræna umhverfismerkjaráðinu.

Hér má finna drög af viðmiðunum og bakgrunnsskjal með frekari upplýsingum. Athugasemdir skulu sendar inn á svanurinn@ust.is eigi síðar en 9. september 2022 svo að þær verði teknar til skoðunar.

Hverjar eru helstu breytingarnar?

Helstu breytingarnar miðað við síðustu útgáfu viðmiðanna eru:

  • Útvíkkun á viðmiðunum þannig þau nái einnig yfir fljótandi lífgas (bio-LPG)
  • Hráefni þurfa nú að vera 100% af endurnýjanlegum uppruna fyrir allar tegundir Svansvottaðs eldsneytis
  • Tekið er fyrir notkun á fóðurplöntum sem hráefni í eldsneytisframleiðslunni
  • Tekið er fyrir notkun á nýjum hráefnum í framleiðslu á loftkenndu gasi – eingöngu má notast við lífrænar leifar eða úrgang
  • Kröfur um losun gróðurhúsalofttegunda í framleiðslu hafa verið hertar

Hverjir geta sent inn umsögn?

Allir geta sent inn umsögn, hvort sem það eru einstaklingar, fyrirtæki eða stofnanir sem hafa áhuga á að taka þátt í þróunarvinnu viðmiða Svansins fyrir eldsneyti. Okkur þætti vænt um ef þú gætir vinsamlegast dreift upplýsingum um opna umsagnarferlið til þeirra sem það gæti varðað.

Hvað svo?

Þegar umsagnartímanum er lokið verða umsagnir teknar  saman, þær metnar og ný endurskoðuð tillaga af viðmiðum lögð fyrir umhverfismerkjaráð allra Norðurlandanna. Í kjölfarið  mun Norræna umhverfismerkjaráðið taka ákvörðun um útgáfu  nýrra viðmiða.

Allar umsagnir sem koma fram í þessu ferli og svör Svansins við þeim verða birtar í ákvörðun Norræna umhverfismerkjaráðsins sem verður aðgengileg á heimasíðu Svansins í tengslum við birtingu nýju útgáfu viðmiðanna.

Endilega sendu okkur línu á svanurinn@ust.is ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi umsagnarferlið.

Fleiri fréttir