fbpx
16. mars 2023

Opin kynning á nýjum viðmiðum fyrir Svansvottaðar nýbyggingar

Þann 28. mars kl 11 verður opin kynning í beinu streymi sem má nálgast hér um ný viðmið Svansins fyrir nýbyggingar. Viðmiðin eru númer 4 og felast helstu breytingar á kröfunum meðal annars í orku- og loftslagskaflanum, búið er að styrkja hringrásarhagkerfis kaflann  og margt fleira.

Farið verður yfir atriði eins og:

  • Hlestu breytingar frá útgáfu 3
  • Helstu áherslur útgáfu 4
  • Skyldu – og valkröfur nýju viðmiðana

Gefið verður færi á að spyrja spurninga en áhugasamir eru hvattir til að spyrja spurninga inni á spjallinu á fundarboðinu eða skrá inn spurningu hér.

Svör við spurningum verða svo birt eftir kynninguna

Hér má finna viðburðinn á facebook: Ný viðmið fyrir Svansvottaðar nýbyggingar – Opin kynning | Facebook

Hér má finna hlekk á upptöku viðburðarins: Opin kynning á viðmiðum Svansins fyrir nýbyggingar – útgáfa 4

Bergþóra Kvaran og Guðrún Lilja Kristinsdóttir sérfræðingar í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun sjá um kynninguna.

Fleiri fréttir