
Byggingar
Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur.
Mikil umhverfisáhrif fylgja byggingargeiranum, en í Svansvottun húsnæðis er markvisst unnið að því að minnka umhverfisáhrif framkvæmdanna, meðal annars með kröfum um lága orkunotkun hússins, gæði byggingar efna- og byggingavörunotkun. Losun efna úr mismunandi byggingarefnum og hlutum er almennt vanmetin og skipta gæði innivistar miklu máli fyrir almenning sem ver um 90% af tíma sínum innandyra. Þannig felast mörg tækifæri í því að taka tillit til umhverfisþátta strax við hönnun bygginga.
Einnig er hægt að votta rekstur og viðhald bygginga sem tekur á orkunotkun, aðlögun að loftslagsbreytingum, innivist og fleira.
Viðmiðin
Viðmið Svansins fyrir nýbyggingar voru fyrst tekin í notkun 2003 og viðmið fyrir endurbætur árið 2017. Nýbyggingarviðmiðin byggjast á tilteknum fjölda skyldukrafna ásamt valkröfum þar sem þarf að ná lágmarksfjölda stiga til að hljóta vottunina. Endurbótaviðmiðin byggjast einungis á skyldukröfum en þó.
Ekki eru gefnar einkunnir við Svansvottanir bygginga líkt og í öðrum vottunarkerfum sem þekkjast hérlendis. Ef byggingin stenst allar skyldukröfur, þ.m.t. lágmarks fjölda stiga (í nýbyggingum) telst hún Svansvottuð. Helstu áherslur í viðmiðunum eru:
- Strangar kröfur um innihald skaðlegra efna í bygginga- og efnavöru
- Góð innivist tryggð með góðri loftræsingu og dagsbirtuútreikningum
- Hagkvæma orkunotkun með áherslu á orkusparnað
- Lækkun kolefnisspors byggingarinnar með efnisvali
- Tryggja gæðastjórnun í byggingarferlinu
- Áhersla á hringrásarhagkerfið og flokkun úrgangs
- Gerð rekstrar- og viðhaldsáætlunar fyrir líftíma byggingarinnar
Hvað er hægt að votta?
- Íbúðarhúsnæði
- Skólabyggingar (allar tegundir)
- Skrifstofuhúsnæði
- Byggingar sem hýsa ráðstefnurými
- Hótelbyggingar
- Heilsustofnanir og heilsugæslur
- Heimili þar sem íbúar dvelja í lengri eða skemmri tíma, svo sem meðferðarheimili, hjúkrunarheimili ofl.
Byggingum sem er breytt er í eitthvað af ofantöldu.
Umsóknargjald
Kostnaður við Svansvottun nýbygginga og endurbóta skiptist í umsóknargjald og fermetragjald.
Innheimtan er þrískipt; umsóknargjald er innheimt þegar sótt er um (525.000), helmingur af fermetragjaldi er innheimt við upphaf byggingartíma og síðari helmingur fermetragjalds er innheimt á seinni hluta framkvæmdirnar eða eftir að starfsmaður Svansins hefur komið í úttekt
- Umsóknargjald er 525.000 ISK
- Fermetragjald uppað 20.000 m2 er 680 ISK/m2
- Fermetragjald eftir 20.000 m2 er 340 ISK/m2
Gildistaka útgáfu 4 - 2023/2024
Ný viðmið fyrir nýbyggingar tóku gildi þann 15.febrúar 2023 og er ekki lengur hægt að sækja um að votta verkefni samkvæmt útgáfu 3.
Ný viðmið fyrir endurbætur tóku gildi í mars 2024. Verkefni sem sækja um og áætlað er að verklok séu fyrir 30.júní 2025 geta ennþá sótt um í útgáfu 1 önnur verkefni sækja um í útgáfu 2.
Ákveðnar breytingar voru gerðar á kröfum fyrir skráðum byggingarefnum en hins vegar var tekin ákvörðun um að takmarka þær breytingar eins og hægt er til að einfalda vinnuna við að fá vörur aftur skráðar í gegnum vörugátt Svansins
Byggingavörur sem hafa fengið samþykki til notkunar í Svansvottuðum byggingum eru núna með gildistíma til 30. september 2026 en eftir þann tíma þarf að sækja aftur um samþykki fyrir öllum byggingarvörum.
Almenna reglan er að til að vara sé leyfileg til notkunar í verkefni sem vottuð eru samkvæmt útgáfu 4 þarf hún að vera skráð samkvæmt nýju viðmiðunum í gegnum vörugátt sem nefnist SCDP; Supply chain declaration portal. Hins vegar hefur Svanurinn á Íslandi tekið þá ákvörðun að leyfa vörur sem skráðar eru fyrir útgáfu 3 í útgáfu 4 til að byrja með eða þangað til í September 2025.
Nýbyggingar, útgáfa 4 - ítarefni
Nýbyggingar, útgáfa 3 - ítarefni
Endurbætur bygginga - ítarefni
Skráðar vörur
Rekstur og viðhald bygginga
Tengiliður

Bergþóra Kvaran
Sérfræðingur
bergthorak@uos.is
591 2000
Reynslusaga

Gylfi Gíslason og Sigrún Melax
Framkvæmdastjóri og gæða-, öryggis- og umhverfisstjóri – Jáverk
Af hverju völduð þið að Svansvotta ykkar vöru/þjónustu?
Umhverfisáhrif bygginga og byggingaframkvæmda eru alveg gríðarleg og okkur langaði til að minnka umhverfisáhrif af okkar verkefnum. Þar sem við erum ekki sérfræðingar í umhverfismálum þá vildum við fylgja því sem sérfræðingar í þessum málum hafa lagt fram og þá eru vottunarkerfin augljósa leiðin. Eftir að hafa skoðað það sem í boði var þá leist okkur best á Svansvottun af ýmsum ástæðum en að okkar mati er Svansvottun einn besti formlegi gæðastimpill sem til er á íslenskum byggingarmakaði í dag. Það sem við erum hvað hrifnust af varðandi Svansvottunina er að fyrir utan það að huga að minni umhverfisáhrifum þá eru stífar kröfur varðandi gæði húsnæðisins og heilnæmi fyrir notendur.
Hver er ávinningurinn af Svansvottun fyrir ykkur og umhverfið?
Það eru mörg atriði sem skila ávinningi en helst ber að nefna minni eiturefna notkun sem skilar sér í betri vinnuaðstæðum fyrir starfsmenn á verkstað, heilnæmara húsnæði fyrir íbúa og notendur og minni umhverfisáhrifum. Lægri orkunotkun húsnæðisins, áhersla á gæði og rakavarnir, heilnæmara inniloft, áhersla á dagsbirtu og hljóðvist og minna kolefnisspor eru dæmi um ávinning af svansvottun.
Með notkun steypu með lægra hlutfalli af sementi minnkar losun vegna sementsframleiðslu um 30-35% en okkur reiknast til að í miðbæ Selfoss hafi „sparast“ um 170 tonn af kolefnisígildum miðað við hefðbundna steypu sem samsvarar árslosun uþb 50 fólksbíla.
Ávinningurinn fyrir okkur er að íbúðirnar munu fá Svansstimpil, sem staðfestir að kröfum hafi verið framfylgt en mikilvægt er fyrir neytendur að eitthvað sé á bakvið yfirlýsingar um „umhverfisvænar“ eða „vistvænar“ vörur.
Mælir þú með því að fara í gegnum Svansvottunarferlið?
Já svo sannarlega. Fyrir utan það að Svansvottunin skili betri vöru þá erum við að minnka umhverfisáhrif og auka við þekkingu okkar á umhverfismálum. Þekkingin sem hefur skapast af því að fara í gegnum Svansvottunarferlið smitast yfir í önnur verkefni.
Hvaða framþróun á Svansvottuninni sérð þú fyrir þér í framtíðinni?
Við þurfum að halda vel á spöðunum ef við ætlum að ná þeim markmiðum sem þurfa að nást í umhverfismálum á næstu árum og við treystum því að sérfræðingar Svansins auki kröfurnar jafnt og þétt í samræmi við það hvernig markaðurinn bregst við. Við getum ekki borðað fílinn í einum bita, við þurfum að taka þetta í skrefum og Svansvottun ásamt öðrum vottunarkerfum eru mjög mikilvægur hlekkur í því að draga markaðinn áfram í rétta átt þannig að það sem við erum að gera í dag verði normið og setja okkur ný viðmið sem við þurfum að ná.