5. nóvember 2026

Stuðlar meiri neysla að innihaldsríkara lífi?

Svanurinn stendur nú fyrir ungmennaherferð á öllum Norðurlöndunum undir yfirskriftinni „Lifðu ríkara lífi“ (e. Live Richer). Markmið herferðarinnar er að hvetja ungt fólk til þess að endurhugsa neysluvenjur sínar.

Þessa dagana taka áhrifavaldar á Norðurlöndunum þátt í áskorun um að eyða engum pening og sýna frá því á samfélagsmiðlum sínum. Í staðinn nota þau það sem þau eiga nú þegar, fá lánað eða finna upp á öðrum skapandi og skemmtilegum lausnum til að spara pening. Kjarnaboðskapur herferðarinnar er að meðvitaðri neysla og kaup á færri óþarfa hlutum geti aukið vellíðan, frelsi og lífsgæði. Áhersla er lögð á að sjálfbær neysla þurfi ekki að vera fórn, hún getur þvert á móti verið ákjósanlegur kostur.

Að lifa ríkara lífi snýst nefnilega ekki um að eiga meira, heldur að fá meira út úr því sem við eigum nú þegar og verja tíma í það skiptir raunverulega máli. Á þennan hátt sýna áhrifavaldar hvernig má tileinka sér sjálfbærari lífsstíl  sem stuðlar að innihaldsríkara lífi og hvetja  ungt fólk til að gera slíkt hið sama – með minni neyslu.

Hér má lesa meira um herferðina og þátttakendurnar.

Við hvetjum öll til að taka þátt í áskoruninni!

Herferðin er fjármögnuð af Norrænni áætlun um sjálfbæra neyslu.

Fleiri fréttir