
Umsóknarferlið
- Sótt er um Svansvottun á þjónustugátt Umhverfis- og orkustofnunar
- Reikningur er sendur út skv. gjaldskrá
- Umsóknargögnum skilað inn
- Gögn yfirfarin af starfsmönnum Svansins og athugasemdum skilað
- Úttektarheimsókn
- Leyfisveiting
- Ársskýrsla og eftirlitsheimsókn árlega (fyrir þjónustufyrirtæki)
- Endurvottun þegar viðmið eru endurskoðuð (3 -5 ára fresti)

Umsóknartími
Gott er að gefa sér góðan tíma í umsóknina og er mælt með að byrja að huga að undirbúningi hennar að minnsta kosti 6 mánuðum áður en fyrirhugað er að leyfið sé útgefið. Ferlið getur þó tekið mun skemmri tíma ef gott utanumhald er um innkaup fyrirtækisins og ef ekki þarf að fara í meiriháttar breytingar á innkaupum og efnanotkun.
Það atriði sem ræður mestu um umsóknartíma og framgang vottunar er að umsækjandi sé með gott utanumhald um gögn og hafi bolmagn til að setja starfsmann/fólk í að vinna umsóknina.
Umsóknartími bygginga er allur byggingartíminn, frá hönnun til fullbúinnar byggingar.
Gjaldskrá
Kostnaður við Svaninn skiptist í umsóknargjald sem greitt er þegar sótt er um og árgjald sem er greitt árlega eftir að fyrirtækið fær vottun.
Almennt umsóknargjald:
- 215.000 kr. fyrir lítil fyrirtæki (minna en 10 ársverk og heildarveltu undir 200. m.kr.)
- 430.000 kr. fyrir stærri fyrirtæki
Umsóknargjald fyrir nýbyggingar og endurbætur
- 525.000 kr. fast gjald, að auki skal greiða:
- 680 kr./m2 að 20.000 m2 og
- 340 kr./m2 umfram 20.000 m2
Árgjald*:
- 0,15% af árlegri veltu þjónustu
- 0,3% af árlegri veltu vottaðrar vöru
- Ekkert árgjald fyrir nýbyggingar og endurbætur
*Afsláttur ef velta fer yfir ákveðna upphæð og hámarks- og lágmarksgjald fyrir hvern vöruflokk
Vöruflokkar

Ræstiþjónusta

Prentþjónusta

Hótel, veitingarekstur
og ráðstefnurými

Byggingar

Dagvöruverslanir

Annað
Hafa samband
Ef þú lendir í vandræðum eða hefur spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur og við hjálpum þér í gegnum ferlið.
Umhverfismerkið Svanurinn
Umhverfis- og orkustofnun
591 2000
svanurinn@uos.is